Innlent

Verða einn helsti bakhjarl alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson og Rósbjörg Jónsdóttir.
Gunnar Bragi Sveinsson og Rósbjörg Jónsdóttir. mynd/aðsend
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Rósbjörg Jónsdóttir frá fyrirtækinu Gekon undirrituðu í dag samstarfssamning um að utanríkisráðuneytið verði einn helsti bakhjarl alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunnar Iceland Geothermal Conference – IGC 2016. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Ráðstefnan er eitt helsta verkefni íslenska jarðvarmaklasasamstarfsins og verður ráðstefnan haldin í þriðja sinn í Hörpu í apríl á næsta ári.  Um 600 manns frá 40 þjóðlöndum tóku þátt í síðustu ráðstefnu jarðhitasamstarfsins sem haldin var í mars 2013. Markmið verkefnisins Iceland Geothermal Conference 2016 er að stuðla að alþjóðlegri umræðu um mikilvægi nýtingar jarðhitans, og þá sérstaklega möguleika til fjölnýtingar sem Íslendingar eru þekktastir fyrir.

Fulltrúi utanríkisráðuneytisins situr í fagnefnd  ráðstefnunnar ásamt sérfræðingum fyrirtækja á sviði jarðvarma og orkuframleiðslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×