Lífið

Verða á skjánum í tvo sólarhringa

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Friðrika Hjördís Geirsdóttir og Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir ætla sér að vera hressar og ferskar í fjörutíu tíma.
Friðrika Hjördís Geirsdóttir og Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir ætla sér að vera hressar og ferskar í fjörutíu tíma. Vísir/pjetur
„Þetta verður blanda einhverri hasar-andvöku og táfýlu,“ segir Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sem mun stýra beinni útsendingu frá WOW Cyclothon-keppninni sem hefst í kvöld.

Eins og kom fram á Vísi í gær verður gerð tilraun til lengstu og flóknustu beinu útsendingar í sjónvarpssögunni á Íslandi. Beina útsendingin verður í um 40 klukkustundir og verða Sigríður Elva og Friðrika Hjördís Geirsdóttir á skjánum nánast allan tímann.

Sigríður segist spennt að vita hvernig þær vinkonurnar verði orðnar undir lokin á þessari maraþonútsendingu „Ég veit nú ekki hvernig þetta verður þarna undir lokin. Líklegast verður ekkert gáfulegt sagt þarna síðustu klukkutímana, sem ætti að vera frábært sjónvarp.“

Sigríður segist ekki kvíða því að segja eitthvað sem ekki á við í beinni útsendingu og útskýrir hlæjandi fyrir blaðamanni: „Ég hef litlar áhyggjur af því. Ég hef nú ekki verið þekkt fyrir að segja margt af viti í sjónvarpi undanfarin ár.“

Hún segir varla hægt að undirbúa sig líkamlega fyrir svona törn eins og útsendingin verður.

„Kannski að kaupa þrjá pakka af Nescafé og sprauta því beint í æð. En þetta verður heljarinnar þrekvirki að vaka svona. Vonandi nær maður nú einhverjum blundum þarna inn á milli. Annars er ég nýkomin frá Bandaríkjunum, þannig að svefninn er nú þegar kominn í svolítið rugl hjá mér.“

Útsending mun hefjast á Stöð 2 Sport klukkan 18.50 þriðjudaginn 23. júní og standa sleitulaust til fimmtudagsins 25. júní þegar fyrstu tíu manna liðin koma í mark.

Útsendingin verður einnig aðgengileg hér á Vísi.

Teymið mun fylgja eftir 10 manna liðunum frá upphafi og taka þau tali á leiðinni, kanna stemningu í hópunum og heimsækja fylgdarbíla liðanna.

Um er að ræða lengstu og flóknustu beinu útsendingu sem farið hefur verið í frá upphafi hérlendis, þar sem öll nýjasta tækni verður notuð til þess að koma útsendingunni í skjái landsmanna.


Tengdar fréttir

Bein útsending: WOW Cyclothon 2015

WOW Cyclothon hjólreiðakeppnin er orðinn stærsti einstaki hjólreiðaviðburður á Íslandi en fjöldi þátttakenda í ár hefur meira en tvöfaldast frá því í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×