Verð vonandi ekki einmana

Fréttablaðið Sport 01. febrúar 2012 06:00
Vilhjálmur Einarsson var tekinn í Heiðurshöll ÍSÍ um síðustu helgi þegar Íþróttasamband Íslands hélt upp á aldarafmæli sitt.
Vilhjálmur Einarsson var tekinn í Heiðurshöll ÍSÍ um síðustu helgi þegar Íþróttasamband Íslands hélt upp á aldarafmæli sitt. Fréttablaðið/ÍSÍ/Arnaldur Halldórsson
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Íþróttasamband Íslands hélt upp á aldarafmælið um helgina með glæsibrag og meðal hátíðarhaldanna var stofnun Heiðurshallar ÍSÍ. Sérstakt heiðursráð tilnefnir einstaklinga í höllina en stjórn ÍSÍ velur úr þeim. Það var samþykkt einróma á sérstökum afmælisfundi stjórnar ÍSÍ fyrir afmælishófið að Vilhjálmur Einarsson yrði fyrsti meðlimur Heiðurshallarinnar.


Erfitt að bera saman afrek
„Auðvitað þykir mér vænt um þetta en ég geri mér hins vegar grein fyrir því að það er ofboðslega erfitt að bera saman afrek í hinum ýmsu íþróttagreinum ekki síst ef það er tekið tillit til tímans, umhverfisins og aðstæðnanna sem eru hverju sinni. Framan af síðustu öld var með eindæmum erfitt fyrir nokkra hér upp á Íslandi að geta afrekað eitthvað á heimsmælikvarða vegna aðstöðu- og efnaleysis," segir Vilhjálmur sem verður 78 ára gamall í sumar.

Vilhjálmur varð árið 1956 fyrsti Íslendingurinn til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum þegar hann fékk silfurverðlaun í þrístökki á leikunum í Melbourne í Ástralíu. Vilhjálmur varð fimmti á Ólympíuleikunum í Róm fjórum árum síðar og í millitíðinni varð hann þriðji á Evrópumeistaramótinu í Svíþjóð 1958.


Kennslukverið aðalþjálfarinn
Vilhjálmur segir það hafa skipt öllu máli að hafa fengið að æfa við bestu aðstæður með háskólanámi í Bandaríkjunum en hann fékk þar skólastyrk.

„Ég fékk samt ekki neina þrístökksþjálfun og tækniæfingarnar fyrir þrístökkið byrjuðu ekki fyrr en ég kom heim um vorið til Íslands. Þá voru ekki mjög margir mánuðir fram að Melbourne. Þetta sumar einbeitti ég mér að því að fínpússa mína tækni í þrístökkinu eftir kennslubókinni frá Gösta Holmér. Hún var eiginlega minn aðalþjálfari þangað til ég komst í tæri við hann sjálfan síðustu tvær vikurnar áður en flogið var til Melbourne," rifjar Vilhjálmur upp.

„Við Hilmar Þorbjörnsson vorum settir í þjálfunarbúðir með Ólympíuliði Svía. Ég var svo heppinn að Svíar höfðu engan þrístökkvara í sínu Ólympíuliði þannig að Gösta Holmér gat hjálpað mér eins mikið og ef ég væri innfæddur án þess að taka frá nokkrum öðrum Svía. Þarna komst ég í samband við mann sem ég trúði mjög mikið á og hafði æft eftir hans forskrift," segir Vilhjálmur og hann man vel eftir leikunum í Melbourne þrátt fyrir að það séu liðin meira en 55 ár.

„Það hafa ýmis tilefni gefist til að rifja upp þessar klukkustundir í aðalkeppninni í Melbourne og það er auðvitað hápunkturinn á ferlinum ásamt reyndar Íslandsmeistaramótinu í Laugardal 1960 þegar ég jafnaði gildandi heimsmet í þrístökki með því að stökkva 16,70 metra algjörlega keppnislaust," segir Vilhjálmur. „Það varð til þess að menn voru búnir að bóka mig á pall í Róm á Ólympíuleikunum sem fóru fram stuttu síðar. Það er aldrei gott að vera bókaður fyrir fram eins og við Íslendingar höfum oft brennt okkur á. Það þarf svo margt að lukkast vel til þess að allt smelli saman. Heppnin þarf alltaf að vera með en hún ein er ekki nóg. Ástundunin og allt það þarf að vera fyrir hendi og svo þarf á lukkunni að halda líka," segir Vilhjálmur.

„Ég ætla að rétt að vona að það komi fleiri í Heiðurshöllina og ég verði ekki einmana þarna. Ég hét á þá í hófinu að láta mig ekki vera lengi einan. Það eru gríðarlega margir ákaflega verðugir. Eins og Ellert B. Schram sagði í hófinu þá er það stóra í þessu hvað íþróttaiðkun er orðin almenn. Þetta þótti hálfgerður fíflaskapur í gamla daga þegar ég var að æfa hérna út um móa og mela. Þá fannst fólki vera illa farið með orkuna," segir Vilhjálmur og hann hefur sterkar skoðanir á íþróttaiðkun barna í dag.


Þurfa næði til að rata á rétta grein
„Ég á orðið tuttugu barnabörn og vel flest þeirra eru að æfa alls konar íþróttir. Eitt er það sem ég óttast svolítið en það er að menn fái aldrei næði til að rata á rétta grein fyrir sig persónulega. Þegar krakkar eru gripnir svona snemma út í mikla þjálfun í tiltekinni grein sem foreldrarnir hafa jafnvel fyrst og fremst haft áhuga á þá lokar það börnin inn í þeim heimi," segir Vilhjálmur sem telur að saga sín styðji við þetta.


Þrístökkið fann mig
„Ég var alæta á íþróttir sem krakki og hélt um fermingu að ég myndi aldrei geta neitt nema kannski í köstum því ég var svolítið feitlaginn. Ég hafði næði til þess að leika mér áfram í öllu mögulegu og dett niður á þrístökkið þegar ég er orðinn 18 ára gamall. Þá finn ég þrístökkið eða þrístökkið finnur mig," segir Vilhjálmur að lokum og allir Íslendingar þekkja síðan framhaldið.

Fleiri fréttir - Sport

Sport 26. maí. 2012 15:32

Hrafnhildur í úrslit í 50 metra bringusundi

Hrafnildur Lúthersdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar tryggði sér í dag sæti í úrslitum í 5...  

Meira
Sport 26. maí. 2012 16:50

Sarah Blake ein þriggja sem þarf að synda aftur

Sarah Blake Bateman varð í áttunda sæti ásamt þremur öðrum sundkonum í undanúrslitum í 50 ...  

Meira
Sport 26. maí. 2012 15:26

Upp og niður hjá Helgu Margréti í Svíþjóð

Fjölþrautarkonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni átti misjöfnu gengi að fagna á f...  

Meira
Sport 26. maí. 2012 14:15

Fjögur gull á fyrsta degi Norðurlandamótsins í skylmingum

Íslendingar unnu til fjögurra gullverðlauna á Norðurlandamótinu í skylmingum sem hófst á L...  

Meira
Sport 26. maí. 2012 14:06

Schumacher fljótastur en Webber á ráspól

Michael Schumacher átti fljótasta hringinn í tímatökunum fyrir Formúlu 1 kappaksturinn sem...  

Meira
Sport 26. maí. 2012 12:43

Maldonado refsað fyrir árekstur á æfingu

Möguleikar Pastor Maldonado á sigri í Mónakó-kappakstrinum í Formúlu 1 snarminnkuðu í morg...  

Meira
Sport 26. maí. 2012 08:35

Sarah Blake tryggði sér sæti í undanúrslitum | Ragnheiður fjarri sínu besta

Sarah Blake Bateman tryggði sér í morgun sæti í undanúrslitum í 50 metra skriðsundi á Evró...  

Meira
Sport 26. maí. 2012 07:57

Árni Már komst ekki í undanúrslit

Árni Már Árnason úr Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar hafnaði i 24. sæti af 48 keppendum í u...  

Meira
Sport 26. maí. 2012 07:45

Hrafnhildur setti Íslandsmet í 50 metra bringusundi

Hrafnhildur Lúthersdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar setti nýtt Íslandsmet í 50 metra bri...  

Meira
Sport 25. maí. 2012 16:45

Ingibjörg Kristín náði tíunda sætinu í 50 metra baksundi

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir komst ekki í úrslitasundið í 50 metra baksundi á EM í 50 metr...  

Meira
Sport 25. maí. 2012 16:35

Hrafnhildur í 5. sæti í 200 metra bringu á EM - setti Íslandsmet

Hrafnhildur Lúthersdóttir setti nýtt Íslandsmet og náði fimmta sætinu í 200m bringusundi k...  

Meira
Sport 25. maí. 2012 09:42

Sindri Þór í 44. sæti í 100 metra flugsundi

Sindri Þór Jakobsson hafnaði í 44. sæti af 53 keppendum í undanrásunum í 100 metra flugsun...  

Meira
Sport 25. maí. 2012 09:31

Ingibjörg Kristín í undanúrslit í 50 metra baksundi

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar tryggði sér í morgun sæti í undan...  

Meira
Sport 25. maí. 2012 09:20

Eygló endaði í 22. sæti í 200 metra skriðsundi á EM

Þrjár íslenskar sundkonur kepptu í 200 metra skriðsundi í morgun á Evrópumeistaramótinu se...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 17:35

Hrafnhildur komst í úrslit á EM

Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir gerði sér lítið fyrir í dag og komst í úrslit í 200 me...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 12:45

Sindri bætti norska metið í 200 m flugsundi | Á líka íslenska metið

Sundkappinn Sindri Þór Jakobsson á nú gildandi met í 200 m flugsundi í tveimur löndum efti...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 12:15

Þrjár borgir eftir í baráttunni um ÓL 2020

Framkvæmdastjórn Alþjóðaólympíusambandsins hefur staðfest að Doha og Bakú koma ekki lengur...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 09:00

Sarah Blake komst ekki áfram

Sarah Blake Batman var rúmri sekúndu frá Íslandsmeti sínu í 100 m flugsundi á EM í Debrece...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 07:54

Hrafnhildur aftur í undanúrslit

Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundkona úr SH, komst í morgun í undanúrslit á EM í 50 m laug í...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 06:00

Óðinn og Ásdís verða með í Dalnum í kvöld

Ólympíufararnir Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH og Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni verða bæði...  

Meira
Sport 23. maí. 2012 09:13

Sigrún Brá langt frá sínu besta

Sigrún Brá Sverrisdóttir náði sér ekki á strik í 800 m skriðsundi á EM í 50 m laug í Debre...  

Meira
Sport 23. maí. 2012 08:43

Systurnar komust ekki áfram

Systurnar Eygló Ósk og Jóhanna Gerða Gústafsdætur kepptu báðar í 100 m baksundi á EM í Ung...  

Meira
Sport 23. maí. 2012 08:25

Jakob Jóhann dæmdur úr leik

Jakob Jóhann Sveinsson var dæmdur úr leik í 100 m bringsundi á EM í Ungverjalandi í morgun...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 22:45

Áfengisbann hjá Rússum á ÓL í sumar

Það verður ekkert agaleysi í herbúðum rússneska Ólympíuhópsins í sumar. Búið er að setja a...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 15:45

Hrafnhildur komst ekki í úrslitin

Hrafnhildur Lúthersdóttir hafnaði í fjórtánda sæti í undanúrslitum í 100 m bringusundi á E...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 09:57

Anton náði ekki að bæta Íslandsmetið

Anton Sveinn McKee hafnaði í 20. sæti í 1500 m skriðsundi á EM í Debrecen í Ungverjalandi....  

Meira
Sport 22. maí. 2012 09:04

Eva náði B-lágmarki fyrir London

Eva Hannesdóttir, sundkona úr KR, bætti sinn besta árangur í 100 m skriðsundi á EM í sundi...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 08:15

Hrafnhildur setti nýtt Íslandsmet og komst í undanúrslit

Hrafnhildur Lúthersdóttir bætti í morgun Íslandsmetið í 100 m bringusundi á EM í Debrecen ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 16:36

Íslenska sveitin bætti metið aftur

Ísland hafnaði í áttunda sæti í úrslitum í 4x100 m skriðsundi á EM í Debrecen í Ungverjlan...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 16:00

Eygló komst ekki í úrslitin

Eygló Ósk Gústafsdóttir komst ekki í úrslit í 200 m baksundi á EM í Ungverjalandi. Hún var...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 10:26

Kári Steinn náði í brons á Norðurlandamóti

Kári Steinn Karlsson varð þriðji í 10 km hlaupi á Norðurlandameistarmótinu sem fór fram í ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 10:34

Ásdís náði fjórða sæti í Brasilíu

Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir stendur í ströngu þessa dagana en um helgina keppti hún ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 09:48

Ísland í úrslit á nýju meti

Boðssundssveit Íslands komst í morgun áfram í úrslit í 4x100 m skriðsundi kvenna á Evrópum...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 09:19

Eygló Ósk í undanúrslit

Eygló Ósk Gústafsdóttir komst örugglega í undanúrslit í 200 m baksundi á EM í sundi sem hó...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 09:05

Jakob Jóhann og Árni Már náðu ekki sínu besta

Undanrásum í 100 m bringusundi er nú lokið á Evrópumeistaramótinu í sundi sem nú fer fram ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 08:00

Fleiri eiga erindi til Lundúna

Alls fara tólf íslenskir sundmenn á EM í 50 m laug sem hefst í Debrecen í Ungverjalandi í ...  

Meira
Sport 19. maí. 2012 13:20

Jacky Pellerin ráðinn landsliðsþjálfari Íslands í sundi

Sundsamband Íslands hefur gengið frá ráðningu á Jacky Pellerin sem landsliðsþjálfara Íslan...  

Meira
Sport 19. maí. 2012 13:00

Ásdís, Ásgeir, Eygló, Ragna og Þorbjörg fengu öll flottan styrk

Tólf framúrskarandi íþróttamenn fengu í gær úthlutað afreksstyrk úr Samfélagssjóði Landsba...  

Meira
Sport 19. maí. 2012 10:00

Ragna: Í besta formi lífs míns

Ragna Ingólfsdóttir stefnir á að sýna sitt rétta andlit á Ólympíuleikunum í Lundúnum í sum...  

Meira
Sport 17. maí. 2012 20:00

Geta unnið Usain Bolt ilm með góðum árangri á Mótaröð FRÍ

Mótaröð FRÍ hefst á laugardaginn með keppni á Vormóti HSK á Selfossvelli en Mótaröð FRÍ er...  

Meira
Sport 14. maí. 2012 11:15

Ísland vann til bronsverðlauna á Norðurlandamótinu

Íslenska landsliðið í boccia vann til bronsverðlauna í flokki 1 án rennu á Norðurlandamóti...  

Meira
Sport 13. maí. 2012 09:00

Mikið áhorf á bardaga Mayweather og Cotto

Floyd Mayweather og Miguel Cotto mokuðu inn peningum á bardaga sínum um daginn. Alls keypt...  

Meira
Sport 12. maí. 2012 13:11

Auðunn nældi í silfur og setti heimsmet

Kraftlyftingamaðurinn Auðunn Jónsson vann í dag silfurverðlaun í réttstöðulyftu á Evrópumó...  

Meira
Sport 12. maí. 2012 12:59

Norðurlandamótið í boccia hafið

Norðurlandamót fatlaðra í boccia var sett í Laugardalshöll í morgun. Sveinn Áki Lúðvíksson...  

Meira
Sport 11. maí. 2012 23:45

Hundur Tebow heitir núna Bronx

Frægðarstjarna Tim Tebow í Bandaríkjunum skín enn mjög skært og hann er afar vinsælt umfjö...  

Meira
Sport 11. maí. 2012 17:15

Stóðu sig betur en þær dönsku og norsku - 24. sæti á EM í fimleikum

Íslenska kvennalandsliðið í fimleikum hefur lokið keppni á Evrópumeistaramótinu í áhaldafi...  

Meira
Sport 10. maí. 2012 23:00

Breska hnefaleikasambandið með hótanir vegna bardaga Haye og Chisora

Breska hnefaleikasambandið er brjálað yfir því að þeir David Haye og Dereck Chisora ætli a...  

Meira
Sport 10. maí. 2012 15:00

Enginn bardagi hjá Khan | Peterson féll á lyfjaprófi

Það verður ekkert af því að Amir Khan og Lamont Peterson mætist að nýju í hringnum þann 19...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 14:30

Klitschko: Ótrúlegt að þessi bardagi fái að fara fram í Bretlandi

Hnefaleikakappinn Wladimir Klitschko er ekki mjög spenntur fyrir komandi bardaga á milli D...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 12:43

Þormóður fer á ÓL í London

Það var staðfest í dag að júdókappinn Þormóður Árni Jónsson mun taka þátt á Ólympíuleikunu...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Verð vonandi ekki einmana