Leikjavísir

Verð Nintendo Switch veldur vonbrigðum

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Leikjatölvan Nintendo Switch kemur á markaði þann 3. mars og mun kosta 299 dali, sem samsvarar um 34 þúsund krónum. Þetta kom fram á kynningu japanska tæknifyrirtækisins í nótt. Um er að ræða fyrstu tölvu fyrirtækisins í fjögur ár, en hún verður gefin út þann 3. mars næstkomandi.

Nintendo Switch er nokkurs konar samblanda af leikjatölvu og spjaldtölvu. Í henni verður 32 GB geymslupláss og er hún með 6,2 tommu 720p snertiskjá. Rafhlöðuending er mismunandi eftir því hvað leiki verið er að spila en er frá tveimur og hálfum tíma upp í sex og hálfan, samkvæmt Polygon.

Nintendo sýndi meðal annars nýja stiklu fyrir The Legend of Zelda: Breath of the Wild.

Fjárfestar og hluthafar í Nintendo telja þó að tölvan muni kosta of mikið og lækkuðu hlutabréf fyrirtækisins í verði eftir kynninguna. Einnig hefur komið í ljós að auka fjarstýringum og tengistöðvum einnig vakið mikla athygli

Hér fyrir neðan má sjá kynningu Nintendo á tölvunni, sem fram fór í Tókýó í nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×