Menning

Verð bara að ganga í verk Guðs almáttugs

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Vala Kristín segir Kára hafa stungið upp á að þau framleiddu þessa sýningu í Frystiklefanum svo allt sé þetta eiginlega honum að kenna!
Vala Kristín segir Kára hafa stungið upp á að þau framleiddu þessa sýningu í Frystiklefanum svo allt sé þetta eiginlega honum að kenna! Vísir/Hanna
Nú er sköpunarverkið allt að smella saman. Kári á stóran hlut í því en það er samt mitt hugarfóstur,“ segir Vala Kristín Eiríksdóttir um gamanleikinn Genesis sem hún frumsýnir í Frystiklefanum á Rifi á Snæfellsnesi 31. júlí í leikstjórn Kára Viðarssonar. Leikritið er byggt á sjálfri sköpunarsögu Biblíunnar svo þau Vala og Kári eru ekkert að fást við fánýtt efni.

Vala Kristín útskrifaðist úr leiklistinni í fyrravor og hefur síðan leikið í Ati, Njálu og Mamma Mia! í Borgarleikhúsinu. Hún er líka meðhöfundur og leikkona sketsaþáttanna Þær tvær hjá Stöð 2. Hún segir hugmyndina að verkinu Genesis hafa kviknað í Leiklistarskóla Íslands eftir að hún lærði þar trúðatækni.



„Ég notaði þennan efnivið í tveimur lokaverkefnum og prófaði mig áfram með áhorfendum, til að rannsaka efnið og átta mig á hvert ég gæti farið með það. Þetta er ekki frumleg hugmynd að því leyti að ég var búin að sjá geggjaðar trúðasýningar í Borgarleikhúsinu áður en ég lærði trúðinn, annars vegar Dauðasyndirnar og hins vegar Jesú litla og ég heillaðist af því að trúður gæti sagt svona stórar sögur á svona einfaldan hátt.“



Mikil samvinna var meðal nemenda í trúðasýningum leiklistarskólans að sögn Völu Kristínar en eftir útskrift segir hún ekki hlaupið að því að ná í fólk í sýningar. „Að ég skuli gera þetta ein rímar líka svolítið vel við það að Guð var einn að búa allt til, samkvæmt sköpunarsögunni, og það væri í raun ósanngjarnt ef ég hefði einhvern til að hjálpa mér. Þannig að ég verð bara að ganga í hlutverk Guðs almáttugs og geri það.“

Lærifaðir Völu Kristínar í trúðatækninni er Argentínumaðurinn Rafael Bianciotto sem hefur búið mestalla ævi í Frakklandi.

„Rafael var leikstjóri Dauðasyndanna og Sókratesar í Borgarleikhúsinu og er svolítið guðfaðir trúðatækninnar hér á landi. Hann hefur verið mér innan handar í mínum pælingum,“ upplýsir Vala.

Kári lærði leiklist við Rose Bruford College í London. Nýútskrifaður þaðan vorið 2009 stofnaði hann leikhúsið Frystiklefann, ásamt hosteli, á Rifi og sýningar hans hafa vakið athygli.

Vala Kristín kveðst fyrst hafa komið vestur á Rif með leikhópnum Improw Iceland og fallið fyrir Frystiklefanum og staðnum.

„Ég fékk að vera hér í fyrrasumar og þá endurheimsótti ég sköpunarsöguna, sagði Kára frá henni og spann um efnið fyrir framan hann. Það uppátæki vatt upp á sig þannig að hann stakk upp á að við myndum framleiða þessa sýningu í Frystiklefanum, svo allt er þetta eiginlega honum að kenna!“



Auk frumsýningarinnar á sunnudaginn verða fimm sýningar á gamanleiknum Genesis, sú síðasta 21. ágúst. Miðar eru pantaðir á thefreezerhostel.com.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. júlí 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×