Verð á fiski hækkar um 4 til 10 prósent á milli ára Atli Ísleifsson skrifar 27. maí 2015 14:09 Minnsta hækkunin er á rauðsprettuflökum sem hafa aðeins hækkað um 1% á milli mælinga. Vísir/GVA
Algengt er að verð á fiskafurðum hafi hækkað um 4 til 10 prósent á síðasta ári, samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ. Eftirlitið kannaði verð þann 20. maí síðastliðinn, en sambærileg könnun var gerð þann 2. júní á síðasta ári. Segir að til hliðsjónar megi benda á að verð á fiski hafi hækkað um átta prósent í vísitölu neysluverðs á þessu tímabili. „Af þeim 15 fiskafurðum sem bornar eru saman kemur í ljós að verð hækkaði mest um 10% að meðaltali á plokkfiski, meðalverðið var í júní 2014 1.523 kr./kg. en er nú 1.671 kr./kg. Einnig má nefna að ýsuhakk hefur hækkað að meðaltali um 9%, meðalverðið í fyrra var 1.432 kr./kg. en er nú 1.559 kr./kg. Minnsta hækkunin er á rauðsprettuflökum sem hafa aðeins hækkað um 1% á milli mælinga, eða úr 1.708 kr./kg. í 1.730 kr./kg. Af einstökum verslunum í samanburðinum má nefna að oftast er sama verð og í fyrra hjá Fiskbúðinni Hafrúnu eða í 7 af 9 tilvikum, hjá Ship O Hoj í 6 af 8 tilvikum og hjá Fiskbúðinni Sundlaugavegi í 6 af 12 tilvikum. Verslanirnar Fisk kompaní, Fiskbúðin Fiskás, Fiskbúðin Hófgerði og Hagkaup hækkuðu meira en aðrar verslanir eða um og vel yfir 10. Þær verðbreytingar sem hér eru birtar miðast við breytingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftirlits ASÍ frá 2.6.2014 og 20.5.2015. Rétt er að árétta að mæld eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma í versluninni og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreytingar einstakra vara.“Nánar er fjallað um könnunina á heimasíðu ASÍ. Samanburðurinn nær til eftirtalinna verslana: Fiskbúðinni Sundlaugavegi, Þinni verslun Seljabraut, Fisk kompaní Akureyri, Fiskbúðinni Hafrúnu Skipholti, Fiskbúðinni Fiskás Hellu, Samkaupum Úrval Hafnarfirði, Nettó Granda, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Ship O Hoj Reykjanesbæ, Litlu Fiskbúðinni Miðvangi, Hafinu fiskverslun Hlíðasmára, Nóatúni Háaleitisbraut, Fiskbúð Hólmgeirs Þönglabakka, Gallerý fisk Nethyl, Fiskbúðinni Hófgerði, Fiskbúð Sjávarfangs Ísafirði, Fiskbúðinni Mos Mosfellsbæ, Fiskbúð Siglufjarðar og Hagkaupum Kringlunni. Segir að hér sé aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Öfund í vinnu og afbrýðisamir vinnufélagar Atvinnulíf Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira