Erlent

Venesúelabúar gefa börn vegna ástandsins

Sæunn Gísladóttir skrifar
Íbúar Venesúla hafa beðið í marga klukkutíma í röðum til að skipta seðlum sínum síðustu daga.
Íbúar Venesúla hafa beðið í marga klukkutíma í röðum til að skipta seðlum sínum síðustu daga. Vísir/EPA
Efnahagsástandið í Venesúela virðist fara versnandi en nú ríkir seðlaskortur í landinu þar sem ákveðið hefur verið að taka verðmætasta seðilinn, 100 bólívara, úr umferð.

The Economist greinir frá því að 11. desember hafi verið tilkynnt um þetta og að íbúar hefðu 72 tíma til að skipta seðlinum í banka. Þetta hefur skapað gríðarlega ringulreið en áætlað er að yfir helmingur af seðlum í umferð séu 100 bólívara seðlar.

Óðaverðbólga hefur nú ríkt um skeið í Venesúela og mælist nú 500 prósent samkvæmt frétt BBC um málið. Nú eru 100 bólívarar einungis jafnvirði tveggja bandarískra senta á svarta markaðnum. Nýir seðlar eiga að vera komnir í umferð í janúar en í vikunni mynduðust gríðarlegar raðir í bönkum landsins þar sem fólk var að reyna að skipta seðlunum sínum. Sérfræðingar telja að það að taka seðilinn úr umferð muni hafa lítil jákvæð áhrif á efnahagslegan og stjórnmálalegan vanda landsins.

Gríðarleg fátækt ríkir nú hjá íbúum sem áður fyrr höfðu það gott, meðallaun eru nú jafnvirði 50 dollara á svarta markaðnum samtímis því að verð á mat og öðrum nauðsynjum hefur rokið upp. Ein móðir segir í samtali við Reuters að hún hafi þurft að láta nágranna um að ala upp dóttur sína þar sem það væri betra en að barnið færi út í vændi, fíkniefni eða myndi einfaldlega láta lífið vegna næringarskorts. Engar tölur liggja fyrir um hve margir foreldrar hafa þurft að gefa börnin sín vegna ástandsins en ljóst er að þetta er veruleiki hjá einhverjum fjölskyldum.

Gengi bólívars hefur lækkað um 60 prósent á síðustu tveimur mánuðum. Í stað 100 bólívara seðla eiga íbúar að fá seðla með hærri upphæð eða sem nemur 10 þúsund og 20 þúsund bólívörum, en frá og með gærdeginum voru þeir ekki komnir í umferð. Ljóst er að mikil ringulreið mun ríkja þar til tekist hefur að útdeila nýjum seðlum til íbúa landsins.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×