Innlent

Velti vélsleða á Langjökli

ingvar haraldsson skrifar
Snjósleði grafinn í fönn árið 2008.
Snjósleði grafinn í fönn árið 2008. mynd/hávarður
Þyrla var sótt eftir konu sem slasaðist á Langjökli um klukkan fjögur í dag. Konan var í skipulagðri vélsleðaferð þegar hún missti stjórn á vélsleðanum og fékk hann yfir sig. Garðar Már Garðarsson, lögreglumaður hjá  lögreglunni á Selfossi segist ekki hafa fengið nákvæmar upplýsingar um líðan konunnar  en hún er þó ekki talin alvarlega slösuð.  

Á nánast sömu mínútu fékk lögregla tilkynningu um fótbrotinn mann á Kili eftir mótorhjólaslys. „Ferðafélagi hans þurfti að yfirgefa hann til að geta hringt eftir aðstoð,“ segir Garðar. Þyrlan sótti því mótorhjólamanninn í sömu ferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×