Erlent

Velta fyrir sér hvort Sanders hefði haft betur gegn Trump

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigur Bernie Sanders í Washington-ríki þykir sérstaklega mikilvægur fyrir áframhaldandi kosningabaráttu hans.
Sigur Bernie Sanders í Washington-ríki þykir sérstaklega mikilvægur fyrir áframhaldandi kosningabaráttu hans. Vísir/Getty
Sú staðreynd að Donald Trump hefur unnið sigur í forsetakosningum vestanhafs hefur fengið margan til að velta fyrir sér ástæðunni. Þar spilar augljóslega margt inn í en eitt af því sem fólk veltir fyrir sér er hvort Hillary Clinton hafi verið nógu sterkur frambjóðandi gegn Trump.

Spurning sem kviknar er meðal annars sú hvort Bernie Sanders, keppinautur Clinton í forkosningum hjá Demókrötum, hefði gengið betur í baráttunni við Trump.

Í baráttunni um útnefningu Demókrata tönnlaðist Sanders á því að hann væri betri kostur í baráttunni við Trump, og kannanir studdu orð hans. Vafalítið hugsa margir kjósendur demókrata til orða Sanders.

„Í hverri einustu stóru könnun sem gerð hefur verið undanfarinn mánuð, sex vikur, vinnum við yfirburðarsigur á Trump. Munurinn er alltaf meiri en á Clinton og honum,“ sagði Sanders í þættinum „Meet the Press“ á NBC í lok maí. Skömmu síðar vann Hillary Clinton nokkuð sigur á Sanders eftir nokkuð harða baráttu framan af og hlaut útnefningu flokksins.

Að neðan má sjá umrætt viðtal við Sanders á NBC.


Bent hefur verið á að á framboðsfundum Sanders hafi verið ára, spenna og stemning sem var ekki tilfellið í kosningabaráttu Clinton. Stuðningsmenn Clinton sögðust telja hana betri kost til að leiða Bandaríkin en aldrei sást ástríða á meðal stuðningsmannanna í líkingu við þá sem skapaðist í kosningabaráttu Barack Obama, fráfarandi forseta, fyrir átta árum.

En það voru áþreifanlegir hlutir sem bentu til þess að sósíalistans Sanders væri betri kostur gegn Trump. Kannanir sýndu að barátta Sanders fyrir háskólamenntun fyrir alla, gegn skuldum námsmanna og áhrifum auðjöfra í stjórnmálum ásamt heilsugæslu fyrir alla gerðu hann að sterkari frambjóðanda gegn Donald Trump.

Bernie Sanders lýsti yfir stuðningi við Hillary og ítrekað hann í gær þegar hann kaus.

Könnun NBC þann 15. maí sagði að Sanders myndi leggja Trump 15 prósentustigamun en Clinton með 3 prósentustigamun. Könnun CBS þann 3. maí sagði að Sanders myndi leggja Trump með 13 prósentustigamun en Clinton með sex prósentustigum. Í könnun Fox News á svipuðum tíma var Trump spáð þriggja prósenta sigri á Clinton en fjögurra prósentustiga tapi gegn Sanders.

Engin leið er að fullyrða um það hvort Sanders hefði gengið betur en Clinton í baráttunni um forsetaembættið, jafnvel þótt kannanir í maí renni fótum undir það. Ekki síst í ljósi þess að sigur Trump á Clinton í nótt er þvert á svo til allar kannanir og spár sem birtar hafa verið undanfarnar vikur og síðast í gær.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×