Innlent

Velski kennarinn: „Það eina sem ég vil er útskýring á þessu“

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Juhel Miah.
Juhel Miah. Skjáskot/BBC
Engin skýring hefur verið gefin á því hvers vegna Juhel Miah, kennara frá Wales, var meinað að ferðast til Bandaríkjanna. Miah er múslimi og frá Swansea í Wales. Hann var á ferð með öðrum kennurum og hóp af börnum á leið í skólaferð til New York.

Miah átti að ferðast með flugvél Icelandair en var vísað frá borði rétt fyrir brottför. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segist engar skýringar hafa á því hvers vegna manninum hafi verið meinað að ferðast til Bandaríkjanna.

„Við höfum ekki grænan grun hvað olli þessu eða hvort þetta tengist eitthvað þessu Trump banni. Þetta bara kemur og við erum enginn aðili að þessu nema að það þarf að segja manninum frá þessum,“ segir Guðjón í samtali við Vísi.

Ástæðan fyrir því að honum var vísað frá borði og ekki leyft að ferðast áfram til New York þangað sem för hans var heitið er sögð sú að bandarísk yfirvöld vildu ekki leyfa honum að koma til Bandaríkjanna.

Málið hefur vakið mikla athygli í Bretlandi og er meðal annars rætt við Miah í fréttum Channel 4. Brot úr viðtali Andy Davies við Miah má sjá hér fyrir neðan.

„Það eina sem ég vil vita er hvort að um mannleg mistök hafi verið að ræða. Ef svo er þá vil ég bara vita það. En ef þetta er meira en það, og ég vona að svo sé ekki, þá vil ég fá útskýringu á því hvers vegna ég mátti ekki ferðast. Það er mitt markmið og þannig vil ég að þetta endi. Ég vona að þetta komi ekki fyrir neinn annan. Ég vil ekki að neinn þurfi að ganga í gegnum það sem ég mátti þola,“ segir Miah.

Einnig er rætt við Miah á BBC. 

„Mér dettur ekki í hug nein ástæða fyrir því að þeir vilja mig ekki um borð, fyrir utan kannski að ég er Múslimi,“ segir Miah við BBC

„Allir litu á mig eins og ég hefði gert eitthvað af mér. Ég spurði ítrekað hvers vegna væri verið að vísa mér frá borði en fékk engin svör.“

Breska sendiráðið á Íslandi gat ekki gefið neinar upplýsingar vegna málsins. Hjá bandaríska sendiráðinu hér á landi fengust þær upplýsingar að best væri að hafa samband við skrifstofu almannavarna Bandaríkjanna (Homeland Security) í London. Enn hefur ekki borist svar þaðan við skriflegri fyrirspurn fréttastofu um mál Miah.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×