Viðskipti erlent

Vélmenni keppa í fótbolta í Brasilíu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vélmennin sem keppa á RoboCup eru mörg hver mjög lipur.
Vélmennin sem keppa á RoboCup eru mörg hver mjög lipur. Mynd/RoboCup 2013
RoboCup er árleg fótboltakeppni vélmenna sem fyrst var stofnað til árið 1997. Markmið keppninnar eru að þróa lið vélmenna í mannsmynd sem geta unnið ríkjandi sigurvegara heimsmeistarakeppni FIFA fyrir árið 2050. RoboCup 2014 verður haldið í Brasilíu í lok mánaðarins.

Síðan þá hafa bæst við aðrar keppnir auk fótbolta. Keppt er í þróun vélmenna sem nýtast við björgun, á heimilum og í iðnaði auk þess sem börnum er gert kleyft að keppa. Vélmenni ungmenna keppa í fótbolta, dansi og björgun.

Í fyrstu keppninni kepptu 38 lið, en Forbes segir keppnisliðin í ár vera alls 550 talsins frá yfir 45 löndum.

Stór tæknifyrirtæki á borð við Google, Facebook og Amazon eru byrjuð að fylgjast vel með þessum keppnum.

Google vinnur meðal annars að þróun bíla sem þurfi ekki stjórnanda. Ann Miura-Ko segir Google þurfa að leita lausna við sömu vandamálum og þeir sem keppi í RoboCup hafi leitað, fyrir aldamót.

Meðal annars hvernig hægt er að stýra í gegnum flókið umhverfi og gera ráð fyrir hreyfingum annarra.

Keppnin vekur mikla athygli ár hvert. Í fyrra var keppnin haldin í Hollandi og mætti fjöldi fólks til að fylgjast með.

Mynd/RoboCup 2013
Fjöldi fólks fylgdist með úrslitaleikjum RoboCup í fyrra.Mynd/RoboCup 2013
Máxima, drottning Hollands, fékk blómvönd frá vélmenni á keppninni í fyrra.Mynd/RoboCup 2013
Hér má sjá einn úrslitaleik keppninar í fyrra. Hér má sjá leik frá RoboCup árið 2009. Hér að neðan má sjá hluta úr úrslitaleik RoboCup í fyrra, sem haldið var í Japan. Hér má sjá úrslitaleik í deild stærstu vélmenna RoboCup í Istanbúl 2011.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×