Glamour

Velkomin í Tommyland

Ritstjórn skrifar
Tommy ásamt Gigi Hadid sem er bæði andlit línunnar og meðhönnuður.
Tommy ásamt Gigi Hadid sem er bæði andlit línunnar og meðhönnuður.
Bandaríski fatarisinn Tommy Hilfiger frumsýndi vor-og sumalínu sína með pompi og pragt í Venice Beach á dögunum.

Sýning bar yfirskriftina Tommyland þar sem gestum var boðið upp á sýningu í glaðbeittu og sólríku umhverfi strandarinnar. Gigi Hadid, sem er andlit Tommy Hilfiger og hefur verið gestahönnuður fyrir fatamerkið síðustu misserin var að sjálfsögðu mætt ásamt systur sinni Bellu Hadid.

Fatalínan var fersk og óhætt að segja að Tommy Hilfiger hafi byrjað sumarið með stæl.

Klútur um úlnliðinn, hringir og belti.

Working with @GigiHadid is the California dream come true. -TH #TOMMYNOW #TOMMYXGIGI

A photo posted by Tommy Hilfiger (@tommyhilfiger) on






×