Innlent

Velferðarvaktin afhenti Eygló tillögu að tilraunaverkefni

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ráðherra og formaður Velferðarvaktarinnar.
Ráðherra og formaður Velferðarvaktarinnar. Mynd/Velferðarráðuneytið
Velferðarvaktin hefur lagt til við Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, að ráðist verði í tilraunaverkefni sem miðar að því að styrkja stöðu einstæðra foreldra sem eru notendur fjárhagsaðstoðar með hagsmuni barna þeirra að leiðarljósi. Siv Friðleifsdóttir formaður Velferðarvaktarinnar gerði ráðherra grein fyrir tillögunni á fundi í velferðarráðuneytinu dag.

Þetta kemur fram á vefsíðu velferðarráðuneytisins.

„Eygló Harðardóttir segir tillögu Velferðarvaktarinnar falla vel að þeim hugmyndum sem kynntar verða í tillögu til þingsályktunar um fjölskyldustefnu. Verkefnið sé mikilvægt og varði hóp í viðkvæmri stöðu sem þurfi að efla: „Ég vonast til að sveitarfélögin taki vel í samstarf eins og hér er lýst og mun hafa samband við þau hið fyrsta til viðræðu um málið.“

Velferðarvaktin hefur skoðað hvernig efla megi úrræði fyrir einstæða foreldra og börn þeirra. Er það í samræmi við skipunarbréf vaktarinnar þar sem áhersla er lögð á að hún skuli huga að velferð og afkomu efnalítilla barnafjölskyldna, sérstaklega einstæðra foreldra og barna þeirra og afla upplýsinga um aðstæður þeirra sem búa við sára fátækt svo draga megi úr henni.

Tilraunaverkefnið sem Velferðarvaktin leggur til að ráðist verði í byggist á niðurstöðu rannsóknar sem Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd gerði í samstarfi við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, að beiðni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Markmiðið var að bera saman efnahagslegar og félagslegar aðstæður reykvískra barnafjölskyldna eftir atvinnustöðu þeirra. Annað markmið var að kanna hvort atvinnustaða foreldra hefur áhrif á þátttöku barna þeirra í íþrótta- og tómstundaiðkun. Að lokum var markmiðið að kortleggja hindranir foreldra sem fá fjárhagsaðstoð til að nýta sér þjónustu er varðar börn þeirra.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna m.a. að börn efnaminni foreldra taka síður þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi, eru síður á leikskóla og hafa síður aðgang að félagslegu tengslaneti almennt samanborið við börn efnameiri foreldra,“ segir á síðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×