Formúla 1

Vélaverð lækkar um milljarð og V6 vélar til 2020

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Max Verstappen sýndi óvart Renault vélina í Toro Rosso bílnum þegar vélarhlíf gaf sig á Monza í september.
Max Verstappen sýndi óvart Renault vélina í Toro Rosso bílnum þegar vélarhlíf gaf sig á Monza í september. Vísir/F1technical
Samkomulag hefur náðst um að halda í V6 tvinnvélar til 2020 að minnsta kosti. Samkomulag náðist um lægri verð á vélunum á tveggja daga fundi í Geníva í vikunni.

Þróunarhópur Formúlu 1 og skipulagsnefnd Formúlu 1 hittust í upphafi vikunnar til að setja saman drög að breyttum reglum í Formúlu 1.

Áhersla fundarins var á vélar eftir að Bernie Ecclestone, eigandi sýningaréttar af Formúlu 1 og Jean Todt, forseti FIA, alþjóða akstursíþróttasambandsins, óskuðu eftir því í sameinginu að liðin finndu lausn á vélavandræðum í íþróttinni.

Ecclestone og Todt höfðu áður lýst yfir stuðningi við þá hugmynd að sjálfstæður vélaframleiðandi yrði fenginn til að smíða öflugari en einfaldari og ódýrari vélar sem stæðu liðum til boða.

Hugmyndin var að öll lið gætu nálgast góða vél á viðráðanlegu verði. Red Bull og Toro Rosso liðin voru næstum án véla á komandi tímabili eftir að hafa slitið samningi við Renault. Sjálfstæður vélaframleiðandi hefði sem dæmi geta komið þeim liðum til bjargar.

Ekki fékkst samþykki meirihluta liða fyrir hugmyndinni um ódýrari og einfaldari vélar. Þá var liðunum gert að finna lausn á vandanum.

Bernie Ecclestone og Jean Todt ná samkomulagi.Vísir/Getty
Nú er samkomulag í höfn. Talið er að Mercedes, Ferrari, Renault og Honda hafi samþykkt að tryggja að öll lið í Formúlu 1 hafi vélar. Eins er talið að samkomulagið feli í sér að verðið lækki talsvert, áður kostuðu vélarnar fyrir keppnistímabilið um 17 milljónir punda, rúmlega 3,1 milljaðra króna, en munu nú kosta um 12 milljónir punda, rúmlega 2,2 milljarða króna.

Þessar breytingar munu að öllum líkindum taka gildi fyrir upphaf tímabilsins 2018.

Auk vélanna var samið um að breyta reglum um hámarksfjölda gírkassa sem hver ökumaður má nota á tímabili. Hver ökumaður má nú einungis nota þrjá gírkassa á tímabilinu áður en hann þarf að sæta refsingu.


Tengdar fréttir

21 kappakstur á næsta ári

Met verður slegið á næsta tímabili í Formúlu 1. 21 kappakstur verður ef áætlanir FIA, alþjóða akstursíþróttasambandsins ganga eftir.

Ferrari beitir neitunarvaldi

FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandið lagði til að verðþak yrði sett á vélar fyrir komandi tímabil. Ferrari beitti neitunarvaldi í málinu.

Ferrari hótar að hætta í Formúlu 1

Forseti Ferrari, Sergio Marchionne hefur sagt að hann íhugi að draga Ferrari úr keppni í Formúlu 1, verði að hugmyndum um einfaldari vél frá óháðum framleiðanda.

FIA bannar sölu ársgamalla véla

FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandið hefur meinað vélaframleiðendum í Formúlu 1 að selja ársgamlar vélar til viðskiptavina sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×