Innlent

Vél WOW til Dyflinnar fór loks klukkan fimm í morgun

Ásgeir Erlendsson skrifar
Farþegar eru margir hverjir mjög ósáttir við upplýsingagjöf flugfélagsins til farþega.
Farþegar eru margir hverjir mjög ósáttir við upplýsingagjöf flugfélagsins til farþega. Vísir
Tuttugu og tveggja klukkustunda töf varð á flugi WOW Air frá Keflavík til Dyflinnar á Írlandi, en hún fór loks af stað klukkan fimm í morgun.

Áætlað var að flugvélin færi frá Keflavík klukkan sex í gærmorgun.

Farþegar eru margir hverjir mjög ósáttir við upplýsingagjöf flugfélagsins til farþega, en loksins þegar flugvélin átti að fara klukkan fjögur í morgun tafðist flugið um klukkustund þar sem tuttugu farþegar höfðu bókað far með öðrum flugfélögum og því þurfti að fjarlægja farangur þeirra úr flugvél WOW Air áður en hún fór loks í loftið.


Tengdar fréttir

28 tíma seinkun á flugi WOW til Dublin

Bilun kom upp í leiguflugvél. Farþegar biðu í sex tíma í Keflavík áður en þeim var tjáð að töfin yrði lengri en gert var ráð fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×