Fótbolti

Vel tekið á móti stelpunum okkar í skóla í Chongqing | Eins og Justin Bieber væri mættur á svæðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Myndir/KSÍ/Hilmar Þór
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er nú statt í Kína þar sem liðið tekur þátt í æfingamóti með heimakonum og tveimur öðrum þjóðum.

Íslensku stelpurnar gerðu jafntefli við Kína í gær en í dag fóru þær í skemmtilega heimsókn í skóla í Chongqing en það er borgin þar sem æfingamótið fer fram.

Á heimasíðu Knattspyrnusambandsins segir að enginn hafi von á því sem tók við leikmönnum. „Á skólalóðinu voru yfir 1000 krakkar með íslenska og kínverska fána og mætti halda að sjálfur Justin Bieber væri mættur á svæðið, slíkur var æsingurinn,“ segir í frétt á heimasíðunni.  

Dóra María Lárusdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir heimsóttu skólann ásamt starfsfólki KSÍ og fengu allir blóm við komuna.

Síðan var gengið á gervigrasvöll skólans þar sem lið skólans var kynnt og í ræðuhöldum var meðal annars talað um að mikið væri lagt upp úr því að hafa öflugt fótboltalið í skólanum.

Stelpurnar okkar spiluðu svo við krakkana og sýndu kínversku ungmennin flotta takta á vellinum. Eftir leikinn voru teknar ótal myndir og eiginhandaráritanir gefnar en á stundum ætlaði allt um koll að keyra sökum æsings krakkana.

Allir fengu þó að lokum mynd og áritun og þökkuðu krakkarnir fyrir sig með því að gefa öllum myndir sem þau sjálf höfðu gert. Það er hægt að finna skemmtilegar myndir Hilmars Þórs Guðmundssonar Norðfjörð inn á Facebook-síðu KSÍ en einnig hér fyrir neðan.

Mynd/KSÍ/Hilmar Þór
Mynd/KSÍ/Hilmar Þór
Mynd/KSÍ/Hilmar Þór
Mynd/KSÍ/Hilmar Þór
Mynd/KSÍ/Hilmar Þór
Mynd/KSÍ/Hilmar Þór
Mynd/KSÍ/Hilmar Þór
Mynd/KSÍ/Hilmar Þór



Fleiri fréttir

Sjá meira


×