Innlent

Vel hægt að innrita níundubekkinga

Menntaskólinn í Reykjavík bíður svara frá menntamálaráðuneytinu um hvort skólinn megi innrita nemendur úr níunda bekk.
Menntaskólinn í Reykjavík bíður svara frá menntamálaráðuneytinu um hvort skólinn megi innrita nemendur úr níunda bekk. Vísir/GVA
Stjórnendur Menntaskólans í Reykjavík (MR) bíða svara frá menntamálaráðuneytinu við fyrirspurn um hvort þeir megi innrita nemendur úr níunda bekk grunnskóla. Fáist leyfið heldur skólinn áfram að útskrifa stúdenta eftir fjögurra ára nám.

Formenn Skólameistarafélags Íslands og Skólastjórafélagsins telja að það ætti að heimila MR að innrita nemendur úr níunda bekk.

„Mér finnst þetta mjög jákvætt,“ segir Svanhildur María Ólafsdóttir, formaður Skólastjórafélagsins.

Hjalti Jón Sveinsson
Hún segir að fyrir hrun hafi nemendur í efstu bekkjum grunnskólans getað tekið áfanga í hinum ýmsu framhaldsskólum. Á þann hátt hafi þeir getað flýtt fyrir sér og útskrifast á skemmri tíma en fjórum árum.

„Þegar menn fóru að skera niður eftir hrun var þetta eitt af því sem var skorið burt,“ segir Svanhildur og bætir við að þetta hafi verið komið vel á veg en þá komið bakslag. „Það þarf sveigjanleika fyrir nemendur og viðurkenningu á því að ekki hentar öllum það sama,“ segir hún.

Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA) og formaður Skólameistarafélags Íslands, segir að hann hafi haft þá skoðun lengi að það eigi að útskrifa nemendur úr framhaldsskólum þegar þeir eru 19 ára. Í því skyni eigi að gera skilin á milli framahaldsskóla og grunnskóla sveigjanlegri. Það megi alveg hugsa sér að stytta grunnskólann um eitt ár og hafa framhaldsskólann fjögur ár.

svanhildur María Ólafsdóttir
„Það er hægt að fara ýmsar leiðir. Það er ekkert því til fyrirstöðu að taka duglega nemendur úr níunda bekk grunnskóla inn í framhaldsskólana,“ segir Hjalti Jón.

Hann segir að VMA hafi boðið upp á ýmsar leiðir fyrir nemendur sem hafi viljað flýta fyrir sér. „Við höfum innritað nemendur sem hafa lokið níunda bekk og við höfum tekið inn krakka um áramót úr tíunda bekk. Þá höfum við boðið upp á að nemendur geti tekið áfanga í staðnámi eða fjarnámi á meðan þeir eru enn í grunnskóla. Mörg þeirra hafa með þessu móti getað stytt nám til lokaprófs um eina til tvær annir,“ segir Hjalti Jón.

Hann bætir við að þetta sýni að góðir nemendur hafi nægan tíma fyrir skólann og að þeir vilji sinna ögrandi verkefnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×