Innlent

Veittu 25 milljónum til hjálparstarfs í Grikklandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Flóttamenn í Grikklandi.
Flóttamenn í Grikklandi. Vísir/EPA
Rauði krossinn á Íslandi veitti í dag 25 milljónum króna til hjálparstarfs á Grikklandi. Það var gert eftir kall Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans vegna neyðarástands sem ríkir þar vegna flóttamannavandans svokallaða. 

Þá veittu samtökin hjálparstarfið einnig um 13 milljónir króna í nóvember. Heildarupphæðin til hjálparstafs í Grikklandi er því 38 milljónir. 

„Í þetta sinn er það ekki síst fyrir framlag utanríkisráðuneytisins sem  gerir Rauða krossinum kleift að styðja hjálparstarfið sem veitir fjölda flóttafólks lífsnauðsynlega aðstoð,“ segir í tilkynningu frá Rauða krossinum.

„Ástandið í Grikklandi hefur lengi verið mjög slæmt og fjárhagslegt bolmagn Rauða krossins í Grikklandi er mjög takmarkað vegna mikils álags. Árið 2010 ákváðu íslensk stjórnvöld að hætta að endursenda hælisleitendur til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.“

Þá kemur enn fremur fram að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna áætlar að á þeim tæpa mánuði sem liðinn er af árinu 2016 hafi yfir 44.000 flóttamenn komist að ströndum Evrópu eftir hættuför yfir Miðjarðarhafið. Flestir þeirra koma að landi í Grikklandi.

Brýnustu verkefnin sem liggja fyrir starfsfólki og sjálfboðaliðum gríska Rauða krossins er dreifing vatns, matvæla og hreinlætispakka. Þá er flóttafólki veitt gunnheilbrigðisþjónusta og flóttafólk aðstoðað við að komast í samband við viðskila ættingja og ástvini.

Páll Biering, dósent í geðhjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands fór sem sendifulltrúi á vegum Rauða krossins til Grikklands í nóvember síðastliðnum. Hann starfaði í flóttamannabúðum norska Rauða krossins í Idomeni, smábæ við landamæri Makedóníu. Helstu verkefni hans voru að veita flóttafólki sem fer um búðirnar sálfélagslegan stuðning auk  þess sem hann þjálfaði sjálfboðaliða gríska Rauða krossins í að veita sálfélagslegan stuðning.

Á morgun, fimmtudaginn 28. janúar kl. 8:30 – 9:30 mun Páll kynna aðkomu sína að hjálparstarfinu. Fyrirlesturinn er opinn öllum og verður haldinn í húsi Rauða krossins, Efstaleiti 9.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×