Innlent

Veittist að sambýliskonu sinni og hrækti á lögreglumann

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Lögregla var nálægt vettvangi þegar tilkynning barst. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Lögregla var nálægt vettvangi þegar tilkynning barst. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/KTD
Maður var í nótt handtekinn fyrir að veitast að sambýliskonu sinni neðarlega á Laugavegi. Lögregla var skammt frá vettvangi þegar tilkynning um atburðina barst.

Maðurinn, sem er á sextugsaldri, neitaði að gefa upp nafn og hrækti í andlit lögreglumanns sem sat í aftursæti lögreglubifreiðarinnar. Sambýliskona mannsins er tæplega fimmtug.Maðurinn var færður á lögreglustöð og í fangaklefa en við leit á honum fundust nokkrir skammtar af kannabisefnum.

Lögreglumaðurinn sem varð fyrir hrákanum leitaði á slysadeild í nótt. Hann mun gangast undir rannsóknir vegna mögulegs smits.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×