Innlent

Veitti sjálfum sér áverka

Kolbeinn Tumi Daðason og Samúel Karl Ólason skrifa
Maðurinn var fluttur í Fossvog.
Maðurinn var fluttur í Fossvog. Vísir/Pjetur
Lögregla og sjúkrateymi var kallað að fjölbýlishúsi í Seljahverfinu í Breiðholti í nótt. Hælisleitandi hafði veitt sér áverka með hníf en vegna tungumálaörðugleika voru fimm handteknir grunaðir um hnífsstungu. DV greindi fyrst frá.

Um er að ræða ungan mann frá Sýrlandi sem er nýkominn til landsins samkvæmt heimildum Vísis. Maðurinn útskýrði á sjúkrahúsinu að hann hefði sjálfur veitt sér áverkana. Var hinum handteknu í kjölfarið sleppt.

„Áfallateymi okkar er núna að vinna að því að veita sambýlingum mannsins áfallahjálp. Eftir það sem gerðist í gær,“ segir Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi Rauða Krossins. „Við leggjum áherslu á að veita þessa fólki eins mikla aðstoð og hægt er.“

Algengt er að hælisleitendum sé komið fyrir í íbúðum fjölbýlishúsa í Reykjavík. Lengi vel var svo gott sem öllum úthlutað plássi á Fit hosteli í Reykjanesbæ en nú er einnig notast við rými sem opið er í Reykjavík. Fólk getur verið frá ólíkum menningarheimum, talar ekki sama tungumál sem getur valdið misskilningi og vandræðum.

„Hælisleitendur eru eðli málsins samkvæmt í mjög erfiðri stöðu og undir mjög miklu álagi. Þeir hafa næstum undantekningalaust þurft að leggja mjög mikið á sig til þess að flýja erfiðar aðstæður. Oftar en ekki hefur flóttinn jafnvel verið erfiðari,“ segir Björn.

Eðli orðsins flóttamaður sé að þú ert að flýja. Þú ert ekki innflytjandi.

„Þú ert ekki að sækjast eftir því að flytja í annað land, þú ert að flýja heimili þitt nauðbeygður. Rauði krossinn leggur áherslu á að það þarf að taka tillit til þess og þeirra aðstæðna sem að þetta fólk býr við,“ segir Björn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×