Innlent

Veita 26 milljónum í verkefni þar sem listir og vísindi koma saman

Stefán Árni Pálsson skrifar
Listaháskóli Íslands og Háskóli Íslands.
Listaháskóli Íslands og Háskóli Íslands. visir/heiða
Norræna ráðherranefndin hefur ákveðið að veita um 26 milljónir króna til nýs verkefnis, KONNECT, þar sem listir og vísindi koma saman til að efla sjálfbæra þróun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskóla Íslands.

Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands og Listaháskóli Íslands hafa forystu um verkefnið, sem nær til allra norrænu ríkjanna. Stærsti hluti styrksins kemur frá nýju áherslusviði ráðherranefndarinnar sem styrkir þverfræðileg verkefni um sjálfbærni.

Í tilkynningunni kemur fram að KONNECT sé ætlað til þess að auka skilning almennings á hinum miklu umhverfisvandamálum sem blasa við um allan heim og munu hafa mjög alvarlegar afleiðingar ef ekkert verður að gert.

„Það nýstárlega við verkefnið er samvinna um sjálfbærni milli listaháskóla og ungra listmanna alls staðar á Norðurlöndum og framúrskarandi vísindamanna á sviði umhverfis og sjálfbærni,“ segir í tilkynningunni.

Það sé oft vandasamt fyrir raunvísindamenn að koma niðurstöðum rannsókna sinna á framfæri við almenning því strangar reglur gilda um hvernig vísindamenn geta tjáð sig. Listamönnum eru hins vegar engin takmörk sett og þeir kunna öðrum fremur að finna nýja fleti og breyta hugarfari út frá forsendum listrænnar sköpunar.

„Við fögnum þessu einstaka tækifæri til að leiða saman unga listamenn og reynda vísindamenn. Það er svo brýnt að vinna saman og láta straumana flæða milli sviða. Með slíkri samvinnu verða nýjar hugmyndir til,” segja þær Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, og Guðrún Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×