Veit kærastinn að þú ert hérna?

Fréttablaðið Lífið 06. febrúar 2012 17:00
Justin Fashanu varð fyrstur og er hingað til sá eini enski atvinnumaður í knattspyrnu til að koma opinberlega út úr skápnum. Hann svipti sig lífi árið 1998.nordicphotos/afp
Justin Fashanu varð fyrstur og er hingað til sá eini enski atvinnumaður í knattspyrnu til að koma opinberlega út úr skápnum. Hann svipti sig lífi árið 1998.nordicphotos/afp
Umræðan um samkynhneigð og íþróttir minnti rækilega á sig í Bretlandi í vikunni í kjölfar átaks leikmannasamtaka ensku deildarinnar til að berjast gegn fordómum og sýningu sjónvarpsþáttar um efnið. Kjartan Guðmundsson kannaði málið.

„Við vinnum að því af öllum mætti að uppræta hómófóbíu. Það er skylda okkar og allir ættu að finna til ábyrgðar gagnvart því verkefni. Við viljum að yfirvöld, félög og stuðningsmenn tileinki sér hugarfarið „og hvað með það?" varðandi samkynhneigð í fótbolta," segir í yfirlýsingu sem leikmannasamtök ensku deildarinnar sendu frá sér í síðustu viku.

Í yfirlýsingunni er greint frá þeim áformum samtakanna að senda öllum 92 félögunum í deildinni plakat og fræðslumynd sem tileinkuð eru baráttunni gegn fordómum gagnvart samkynhneigðum innan íþróttarinnar. Öðrum þræði er herferðinni, sem nýtur meðal annars stuðnings enska knattspyrnusambandsins, ætlað að fullvissa samkynhneigða knattspyrnumenn um að kjósi þeir að koma opinberlega út úr skápnum hljóti þeir stuðning liðs síns, liðsfélaga og almennings.


Brautryðjandinn Fashanu
Umræðan um samkynhneigð og íþróttir skýtur reglulega upp kollinum í Bretlandi. Hún minnti og rækilega á sig í vikunni vegna yfirlýsingar leikmannasamtakanna, en ekki síður þegar BBC frumsýndi nýjan sjónvarpsþátt um efnið, Britain's Gay Footballers, sem vakti mikla athygli þar í landi.

Í þættinum rifjar fyrirsætan Amal Fashanu, dóttir atvinnumannsins fyrrverandi Johns Fashanu, upp sorgarsögu föðurbróður síns, Justins Fashanu, sem var fyrsti atvinnumaðurinn í knattspyrnu sem kom opinberlega út úr skápnum árið 1990. Justin Fashanu varð einnig fyrsti svarti leikmaðurinn sem var seldur milli félaga fyrir meira en eina milljón punda, þegar Nottingham Forest keypti hann frá Norwich City árið 1981, og þannig brautryðjandi á ýmsum sviðum.

Velgengnin á vellinum endurspeglaðist þó ekki í einkalífi Fashanu. Snemma fóru að berast út sögusagnir um tíðar heimsóknir hans á skemmtistaði ætlaða samkynhneigðum og hlaut leikmaðurinn bágt fyrir hjá liðsfélögum sínum, knattspyrnustjórum (Brian Clough, stjóri Nottingham Forest, kallaði Fashanu opinberlega „poof", skammaryrði yfir homma, eftir að sá síðarnefndi kom út úr skápnum) og áhorfendum sem jusu yfir hann svívirðingum við hvert tækifæri.

Sjálfstraustið dvínaði með hverju árinu og náði Fashanu aldrei sínu fyrra formi. Hann gerði opinberlega grein fyrir samkynhneigð sinni í viðtali við slúðurblaðið The Sun árið 1990 og í kjölfarið afneitaði bróðir hans, John Fashanu sem lék meðal annars með Wimbledon á gifturíkum ferli, honum í fjölmiðlum.

Eftir að hafa þvælst á milli liða í Evrópu og Bandaríkjunum lagði Fashanu skóna á hilluna árið 1997. Ári síðar var hann kærður fyrir kynferðisbrot gegn sautján ára gömlum dreng í Bandaríkjunum og framdi í kjölfarið sjálfsmorð í London. Í kveðjubréfi sínu hélt hann fram sakleysi sínu, en síðar kom í ljós að rannsókn málsins hafði þegar verið hætt vegna skorts á sönnunargögnum.


Hvers vegna engir fleiri?
Fram til þessa dags er Justin Fashanu eini atvinnufótboltamaðurinn í Bretlandi sem komið hefur út úr skápnum, í það minnsta meðan á sjálfum knattspyrnuferlinum stendur. Slíkt er ólíkt algengra meðal knattspyrnukvenna, en ekki virðist miklu púðri hafa verið eytt í að kanna ástæður þess misræmis.

Undirliggjandi í sjónvarpsþætti Amal Fashanu á BBC er spurningin hvers vegna fleiri hafi ekki fylgt í fótspor frænda hennar og komið út úr skápnum, þar sem almennur líkindareikningur geri ráð fyrir að samkynhneigðir knattspyrnumenn hljóti að vera allnokkrir talsins. Svaranna leitar Fashanu í heimsóknum á fótboltavelli og samræðum við leikmenn, sem og aðra sem starfa innan geirans, og virðast ansi skiptar skoðanir um ástandið í dag.

Fashanu ferðast meðal annars til Brighton, sem stundum er nefnd höfuðborg samkynhneigðra í Bretlandi, sækir leik með Brighton Hove & Albion og spjallar við aðdáendur liðsins. Þar heyrir hún stuðningsmenn mótherjanna einbeita sér að tengingu borgarinnar við samkynhneigð í söngvum sínum og fræðist um að þannig sé það á hverjum einsta leik. „Does your boyfriend know you're here?" og „Stand up if you can't sit down" er meðal þess sem þeir kyrja, en stuðningsmenn Brighton svara með „You're too ugly to be gay".

Þá veltir ungur stuðningsmaður Brighton því upp hvort ekki ætti að gera fordóma gegn samkynhneigð á fótboltavöllum ólöglega rétt eins og kynþáttafordóma, en málaferli vegna hinna síðarnefndu hafa verið einkar áberandi í Englandi síðustu vikur og mánuði.


Joey Barton hrósað
Í sama streng tekur fyrrum NBA-leikmaðurinn John Amaechi, sem einnig er breskur og vikið er að nánar hér á síðunni, og segir að ensk knattspyrnuyfirvöld gætu hæglega náð mun betri árangri í baráttunni við þessa fordóma en verið hefur. Peningarnir séu vissulega til staðar, og í ótrúlega miklu magni, en svo virðist sem enginn raunverulegur áhugi sé á að tækla vandamálið. Í framhaldi af því má velta fyrir sér hvort það að senda plaköt og DVD-myndir til félaganna í deildinni, eins og minnst var á í upphafi, endurspegli í raun einbeittan vilja til árangurs í þessum efnum.

Amal Fashanu segist í þættinum handviss um að þátttaka vinsælla leikmanna, sem margir hverjir eru fyrirmyndir ungs fólks um allan heim, í hvers kyns baráttu gegn slíkum fordómum myndi skila sér margfalt til baka. Hún hafði samband við marga af þekkstustu leikmönnum deildarinnar, meðal annarra þá John Terry, Rio Ferdinand, Frank Lampard og Theo Walcott, en enginn þeirra gaf kost á sér í viðtal fyrir þáttinn.

Eini úrvalsdeildarleikmaðurinn sem sem vildi, eða hafði tíma til, að ræða opinskátt um samkynhneigð í enska boltanum er Joey Barton, leikmaður QPR, sem oftar en ekki hefur komist í fréttir vegna skapofsa á vellinum og utan hans. Hefur Barton verið hrósað mjög í fjölmiðlum ytra fyrir þátttöku sína í þættinum, en þar ræðir hann meðal annars um frænda sinn sem er samkynhneigður og stemninguna í búningsherbergjum fótboltamanna, þar sem nánast virðist bannað að ræða um annað en stelpur, bíla og, jú, fótbolta.


John Amaechi.
John Amaechi.
Fyrsti NBA-leikmaðurinn til að koma út úr skápnum
Englendingurinn John Amaechi komst á spjöld sögunnar þegar hann skoraði fyrstu stig nýrrar aldar í NBA-deildinni. Öllu meiri athygli vakti þó sjálfsævisaga hans, Man in the Middle sem hann gaf út árið 2007, nokkrum árum eftir að hann lagði skóna á hilluna, en í henni kom Amaechi út úr skápnum og varð þannig fyrsti NBA-leikmaðurinn til að ræða samkynhneigð sína opinberlega.

Á ferlinum lék Amaechi meðal annars með Orlando Magic og Utah Jazz. Í bókinni ræðir Amaechi um þá innri baráttu sem hann átti í öll þau fimmtán ár sem hann lék körfubolta, hvernig hann hugsaði stöðugt um að koma út úr skápnum en gat ekki hugsað sér það vegna þess öfga-karlmennskuandrúmslofts sem ríkti í kringum íþróttina, og í raun flestar aðrar íþróttir. Í stað þess lifði Amaechi tvöföldu lífi, ferðaðist milli borga til að sækja skemmtistaði sem vinsælir voru meðal samkynhneigðra og lifði sínu ástalífi í felum. Jafnvel umboðsmaðurinn hans vissi ekki um samkynhneigðina fyrr en þeir höfðu unnið saman í dágóðan tíma.

„Það var ekki fyrr en hann kom heim til mín og heyrði óminn af rödd Karen Carpenter í gegnum útidyrahurðina sem hann grunaði eitthvað. Svo sá hann regnbogalitaða handklæðið mitt á baðherberginu og þá varð hann alveg viss," segir Amaechi í bók sinni. „Hann sagði mér að ég hlyti að vera eini íþróttakappinn í sögunni sem þurrkaði sér með handklæði í regnbogalitum og raulaði með laginu „We've Only Just Begun."

Viðbrögðin við bók Amaechi voru mikil og blendin. Leikmaðurinn Tim Hardaway sagðist til dæmis aðspurður „hata homma", en Shaquille O'Neal og Grant Hill studdu ákvörðun Amaechis.

Fleiri fréttir - Lífið

Lífið 26. maí. 2012 15:00

Poppið fyrirferðarmeira en klassíkin í Hörpunni

Fleiri popp- og rokktónleikar hafa verið haldnir í Hörpunni en klassískir síðan húsið var ...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 14:00

Fyrsta lagið á íslensku

Hljómsveitin Thin Jim var að senda frá sér nýtt lag sem heitir Fjólubláar sóleyjar. Þetta ...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 13:00

Anchorman mjög vinsæl

Það hefur komið gamanleikaranum Will Ferrell mjög á óvart hversu margir vilja taka þátt í ...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 10:15

Paris situr fyrir í Cannes

Paris Hilton sat fyrir hjá ljósmyndaranum Ellen Von Unwerth á kvikmyndahátíðinni í Cannes ...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 11:00

Aldrei reynt við Rafaeli

Fyrirsætan Bar Rafaeli, fyrrverandi kærasta leikarans Leonardos DiCaprio, hefur kvartað yf...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 09:30

Tölvan lagar röddina

Will.i.am úr hljómsveitinni Black Eyed Peas þarf á hjálp tölvutækninnar að halda þegar han...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 08:30

Óþægilegt á nærbuxunum

Zac Efron segir að það hafi verið krefjandi að leika í myndinni The Paperboy og að hlutver...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 08:00

Hrefna Rósa blandar sósur

„Mig langar að gera gúrmevöru aðgengilegri fyrir almenning,“ segir kokkurinn H...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 07:00

Sjö tomma frá Retro

Hljómsveitin Retro Stefson hefur sent frá sér sjö tommu vínylplötu með laginu Qween. Á B-h...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 06:30

Pósa nakin fyrir sýningu í Ósló

„Rauði þráðurinn í gegnum sýninguna er okkar upplifun af umhverfinu sem við erum í,&...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 03:13

Williams á von á dóttur

Robbie Williams á von á dóttur með eiginkonu sinni Ayda Field. Söngvarinn er mjög spenntur...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:30

Ólafur og Dorrit heimsækja Landspítalann við Hringbraut

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær þegar forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorr...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:30

Vel heppnuð endurkoma Roses

Breska hljómsveitin The Stone Roses spilaði óvænt á sínum fyrstu tónleikum í sextán ár í b...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:00

Skreytir Gretu Salóme

Gullsmiðurinn Sigurður Ingi, hönnuðurinn á bak við Sign skartgripalínuna sér um skraut Gre...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 15:15

Halló Neon!

Sumarið er tíminn og með sumrinu koma litirnir. Nú í ár eru litirnir heldur skærari en áðu...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 14:30

Tekinn fram yfir þekkta norska leikara

"Þetta er ein af þessum stóru auglýsingum sem maður vill gjarnan næla sér í,“ segir ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 14:15

Britney fersk í X-Factor

Söngkonan Britney Spears, 30 ára, var brosandi klædd í bleikan kjól þegar hún mætti í töku...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 14:00

Hundar bjarga lífum

Hundar eru ekki aðeins besti vinur mannsins heldur eru þeir einnig taldir heilsubætandi. H...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 13:30

Græða á götutísku

Scott Schuman og Garance Doré halda úti tískublogginu The Sartorialist, sem hefur lengi ve...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 12:30

Barnshafandi Uma Thurman

Leikkonan Uma Thurman, 42 ára, var mynduð á hraðferð í New York í gær með djús í hendi og ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 11:30

Frægir stíga út úr skápnum

Bandaríski leikarinn Jim Parsons, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á hinum elskulega en...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 11:15

Sigga hefur tröllatrú á Gretu og Jónsa

"Ég er stödd á Spáni og mun horfa á keppnina með fjölskyldunni hérna úti. Ég hlakka mikið ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 10:30

Horfir á Eurovision í faðmi fjölskyldunnar

"Ég verð heima hjá mér með fjölskyldu minni og horfi á Ísland taka þátt. Ég skipti svo sna...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 09:45

Opnunargleði Górillu

Viðburðabarinn Górillan stimplaði sig inn með látum í skemmtanalíf miðborgarinnar í síðust...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 09:00

Helgarmaturinn - Matti gefur góða Eurovision-uppskrift

Matthías Matthíasson söngvari með meiru gefur okkur uppskrift að dýrindis laxi með góðu sa...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 08:00

Júniform lokar

Birta Björnsdóttir, fatahönnuður sem rekið hefur verslunina Júniform í tíu farsæl ár heldu...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:00

Nýtt andlit Material Girl

Georgia May Jagger, dóttir tónlistarmannsins Micks Jagger og fyrirsætunnar Jerry Hall, er ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 15:00

Kristján samdi fyrir Klaufana

Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson samdi nánast öll lög og texta á væntanlegri plötu ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 11:00

Glymskrattinn í leikhúskjallaranum

Dans-og tónleikaverkið Glymskrattinn var frumsýnt á miðvikudaginn í Þjóðleikhúskjallaranum...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 10:15

Styrkja UN Women

Tónleikar til styrktar UN Women fara fram á Gauki á Stöng í kvöld. Það er vefverslunin Gog...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 10:00

Depp ættleiddur

Leikarinn Johnny Depp var ættleiddur af Comanche-indíánum frá Nýju Mexíkó og tilheyrir nú ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 09:00

Bassi heitir loksins Bassi

„Ég er ekkert þekktur sem Björn þannig að það lá einhvern veginn beint við að kýla þ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 23:37

Jim "Sheldon" Parsons kominn út úr skápnum

Bandaríski leikarinn Jim Parsons, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á hinum elskulega en...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 21:30

Fimmta Die Hard-myndin vonandi sú besta

Bruce Willis vill að fimmta Die Hard-myndin verði betri en sú fyrsta í seríunni. Hann samþ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 17:30

Ótrúlegt að fá Þursaflokkinn

"Það er ótrúlegt að fá þá því þeir spila svo sjaldan,“ segir grínistinn Ari Eldjárn....  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 17:00

Katherine Heigl með ættleidda dóttur sína

Leikkonan Katherine Heigl var á ferðinni með nýjasta meðlim fjölskyldunnar í Beverly Hills...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 16:30

Will Smith með alla fjölskylduna á frumsýningu

Will Smith, Jada Pinkett Smith, Jayden Smith, og Willow Smith mættu saman til frumsýninga...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 14:30

Kossaflens í Cannes

Twilight stjörnurnar Rob Pattinson, 26 ára, og Kristen Stewart voru innileg við hvort anna...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 14:30

Nicole Scherzinger glæsileg í rauðum kjól

Söngkonan Nicole Scherzinger var glæsileg að sjá í gærkvöldi er hún fór út að borða á Nobu...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 13:30

Ástfangin Kim

Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian og unnusti hennar tónlistarmaðurinn Kanye West leiddust í...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 11:30

Rihanna og Jennifer Lopez slógu í gegn á Idol sviðinu

Hún var ekki af verri endanum sýningin sem boðin var upp á í lokaþætti American Idol sem f...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 11:30

Bono örlátur

Bono, söngvari U2, yfirgaf veitingahús í London ásamt eiginkonu sinni Nancy Shevell...Bono...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 10:30

Hrærð Idol stjarna

Phillip Phillips sigraði American Idol með sóma í nótt en lokaþátturinn fór fram í Nokia l...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 18:15

Vill ekki vera stjarna

Leikarinn Tom Hardy hefur engan áhuga á að vera kvikmyndastjarna sem er sífellt í sviðsljó...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 17:00

Kosin kynþokkafyllst

Ísraelska fyrirsætan Bar Refaeli var á dögunum kosin kynþokkafyllsta kona í heimi af lesen...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 15:00

Einsamall í Cannes

Leikarinn Brad Pitt mætti einn síns liðs á rauða dregilinn í Cannes í vikunni. Unnusta han...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 15:00

Gisele ólétt?

Ofurfyrirsætan Gisele Bundchen er ólétt að sínu öðru barni ef marka má slúðurmiðla vestan ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 14:30

Meiri Hungurleikar

Önnur bókin í þríleik Suzanne Collins um Hungurleikana, Eldar kvikna, er að koma út hjá Fo...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 13:00

Dramatísk helgi í bíóhúsunum

Gelgjutryllirinn Zac Efron sýnir á sér nýjar hliðar í dramamyndinni The Lucky One sem var ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 12:30

Bölvun hvílir á hlutverki Galifianakis

Gamanleikarinn Zach Galifianakis er talinn líklegur til að fara með hlutverk Ignatius Jacq...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Lífið / Veit kærastinn að þú ert hérna?