Fótbolti

Veisla hjá Barcelona | Sjáðu mörkin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Pique skoraði í dag.
Pique skoraði í dag. vísir/getty
Barcelona átti ekki í neinum vandræðum með Cordoba í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta. Veislan byrjaði eftir tvær mínútur og stóð yfir allan leikinn.

Pedro Rodriguez var fyrstur á blað eftir tvær mínútur og þannig var staðan í hálfleik. Luis Suarez tvöfaldaði forystu Barcelona stuttu eftir hlé.

Gerard Pique kom Barcelona í 3-0 á 80. mínútu og argentínski snillingurinn Lionel Messi bætti við tveimur mörkum áður en yfir lauk.

Barcelona er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar, stigi á eftir Real Madrid sem á leik til góða.

Stuð á Nou Camp:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×