Innlent

Veikindi hjá velferðarsviði kosta borgina yfir hundrað milljónir segir borgarfulltrúi

Hanna Ruth Ólafsdóttir skrifar
Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir nauðsynlegt að bregðast við háum launakostnaði vegna veikinda starfsmanna.
Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir nauðsynlegt að bregðast við háum launakostnaði vegna veikinda starfsmanna.
Talið er að veikindi starfsmanna velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og fjarvistir vegna þeirra hafa kostað borgina 145 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á þeim tíma hafa laun og launatengd gjöld alls farið 256 milljónir króna fram úr áætlun eða fimm prósent.

Unnið er að því á vegum borgarinnar að greina þessar miklu fjarvistir og veikindi starfsmanna á sviðinu.

Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á velferðarsviði, fer fram á að skoðaðar verði ástæður þess að launakostnaður vegna veikinda sé eins hár og raun ber vitni. Áslaug lagði fram bókun á fundi velferðarráðs þann 4. september síðastliðinn vegna málsins. Í bókun Áslaugar kemur fram að launakostnaður velferðarsviðs á árinu líti út fyrir að verða nokkru hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. „Samkvæmt mínum upplýsingum frá borginni er einn hluti af skýringunni veikindi starfsmanna og álag vegna yfirvinnu og stórhátíða. En talið er að þessi kostnaður geti numið um 145 milljónum króna í 6 mánaða uppgjöri sviðsins. Við teljum nauðsynlegt að bregðast við og skoða hvort veikindin séu vinnutengd og þá hvort nauðsynlegt sé að gera breytingar á skipulagi á vinnu starfsmanna. Hvort eitthvað í vinnuumhverfi starfsmanna sé að hafa neikvæð áhrif á heilsu þeirra.“

Hún segir önnur svið borgarinnar standa frammi fyrir sama vanda þannig að búast megi við að samanlögð upphæð sé mun hærri þegar á heildina er litið.

Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs bendir á að málið sé í skoðun hjá borginni en endanleg niðurstaða liggi ekki fyrir. „Kostnaðurinn hefur farið vaxandi með auknu álagi og breytingum á þjónustu sviðsins. Ég fagna því að þetta verði tekið til athugunar.“

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar sér meðal annars um rekstur hjúkrunarheimila, húsnæðis- og búsetuúrræði, barnavernd, félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa, heimahjúkrun, dagvist aldraðra og ferðaþjónustu.

Árið 2013 voru starfsmenn sviðsins 2.269 talsins í 1.536 stöðugildum og var meðalaldur þeirra 42 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×