Íslenski boltinn

Veik von Stjörnukvenna lifir enn | Öll úrslit kvöldsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Stjörnukonur eiga enn tölfræðilegan möguleika á Íslandsmeistaratitlinum.
Stjörnukonur eiga enn tölfræðilegan möguleika á Íslandsmeistaratitlinum. Vísir/Ernir
Stjörnukonur héldu veikri von sinni um að verja Íslandsmeistaratitilinn á lífi með 2-1 sigri á ÍBV á Samsung-vellinum í kvöld.

Stjörnukonur komust yfir eftir þrettán mínútna leik í fyrri hálfleik en ÍBV náði að jafna metin korteri fyrir leikslok.

Virtist allt ætla að stefna í jafntefli sem hefði þýtt að Breiðablik væri Íslandsmeistari en Stjörnukonur náðu að stela sigrinum á þriðju mínútu í uppbótartíma.

Fylkir skaust upp fyrir Val með öruggum 6-0 sigri á Þrótt á heimavelli í kvöld en á sama tíma töpuðu Valskonur 0-4 gegn Þór/KA. Komu öll mörk Þór/KA á 25 mínútna kafla í seinni hálfleik.

Úrslit kvöldsins:

Valur 0-4 Þór/KA

0-1 Klara Lindberg (69.), 0-2 Klara Lindberg (80.), 0-3 Klara Lindberg (83.), 0-4 Sandra María Jessen (85.).

Stjarnan 2-1 ÍBV

1-0 Guðrún Karítas Sigurðardóttir (13.), 1-1 Esther Rós Arnarsdóttir (78.), 2-1 Harpa Þorsteinsdóttir (93.)

Fylkir 6-0 Þróttur R.

1-0 Jasmín Erla Ingadóttir (33.), 2-0 Jasmín Erla Ingadóttir (39.), 3-0 Jasmín Erla Ingadóttir (44.), 4-0 Jasmín Erla Ingadóttir (45+1.) 5-0 Jasmín Erla Ingadóttir (59.), 6-0 Aivi Luik (67.).

Selfoss 1-1 Breiðablik

0-1 Telma Hjaltalín Þrastardóttir (59.), 1-1 Dagný Brynjarsdóttir (63.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×