Erlent

Veiðimenn lugu um skotbardaga við „ólöglega innflytjendur“

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögregluyfirvöld á svæðinu voru full efasemda um sögu fólksins, en um 30 lögregluþjónar og leitarmenn voru sendir til að fara yfir svæðið.
Lögregluyfirvöld á svæðinu voru full efasemda um sögu fólksins, en um 30 lögregluþjónar og leitarmenn voru sendir til að fara yfir svæðið. Vísir/GEtty
Veiði- og leiðsögumennirnir Walker Daugherty og Michael Bryant voru að leiða hóp veiðimanna í Texas í janúar um átta kílómetra frá landamærum Mexíkó, þegar hópur ólöglegra innflytjenda frá Mexíkó hóf skothríð á þá um miðja nótt. Markmið fólksins var að ræna húsbíl sem veiðihópurinn notaðist við. Þegar öllu var aflokið hafði Daugherty fengið skot í magann og skjólstæðingur þeirra, Edwin Roberts, særðist á hendinni.

Þetta var frásögn veiðimannanna eftir að þeir voru fluttir á sjúkrahús. Seinna meir sögðu þeir vinum og fjölskyldu að innflytjendurnir ólöglegu hefðu ætlað sér að myrða alla í veiðibúðunum.

Hópfjáröflun var sett af stað þar sem fólk gat hjálpað Daughtry að borga læknakostnað sinn. Tæplega þrjú hundruð þúsund krónur söfnuðust.

Staðreyndin er hins vegar sú að Daugherty skaut skjólstæðing sinn og Bryant skaut Doherty. Þeir reyndu svo að hylma yfir sannleikann með þessari lygilegu sögu. Þeir hafa nú verið ákærðir vegna málsins.

Lögreglan efaðist strax en sagan fór víða

Lögregluyfirvöld á svæðinu voru full efasemda um sögu fólksins, en um 30 lögregluþjónar og leitarmenn voru sendir til að fara yfir svæðið. Einnig var notast við þyrlu með hitamyndavél. Engin ummerki um ferðir annarra en þeirra sem voru í veiðihópnum fundust og engin skothylki fundust heldur, samkvæmt frétt Washington Post.

Þrátt fyrir að það tók lögregluna einungis nokkra daga að lýsa því yfir að engar vísbendingar höfðu fundist um að saga þeirra væri sönn, hafði henni verið dreift víða á samfélagsmiðlum. Þar hafði sagan einnig tekið nokkrum breytingum og var meðal annars sagt að „innflytjendurnir“ hefðu umkringt veiðihópinn og skotið á fólkið úr öllum áttum.

Sid Miller, háttsettur embættismaður í Texas, deildi sögunni á Facebook og sagði hina meintu árás til marks um nauðsyn þess að byggja vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, eins og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur lofað að gera.

Færslunni var deilt minnst 6.500 sinnum áður en Miller eyddi henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×