Innlent

Veglínur sem Vegagerðin vill meta í Gufudalssveit

Kristján Már Unnarsson skrifar
Ný veglína um Teigsskóg er merkt leið Þ-H.
Ný veglína um Teigsskóg er merkt leið Þ-H. Kort/Vegagerðin.
Ný veglína um Teigsskóg er meðal valkosta í nýrri matsáætlun sem Vegagerðin hefur sent Skipulagstofnun til formlegrar ákvörðunar vegna framtíðarlegu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit, milli Bjarkalundar og Melaness.  Lagt er til að fjórar aðrar leiðir verði einnig metnar.

Skipulagsstofnun hafnaði því óformlega fyrr á árinu að ný veglína um Teigsskóg færi í nýtt umhverfismat á þeirri forsendu að þegar væri búið að hafna framkvæmdinni. Vegagerðin vill hins vegar fá þá afstöðu fram með formlegum hætti, sem gefur færi á að kæra niðurstöðuna til æðra stjórnvalds.

Núverandi vegur er 41,6 km langur en nýr vegur verður 19,7-21,7 km langur, háð leiðarvali, að því er fram kemur í kynningu Vegagerðarinnar. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum.

Húsmæður á Vestfjörðum mótmæltu með búsáhöldum á frægum fundi á Patreksfirði haustið 2011 þeirri stefnumörkun Ögmundar Jónassonar, fyrrverandi innanríkisráðherra, að hafna láglendisleið um Teigsskóg.Mynd/Egill Aðalsteinsson.
Umhverfisáhrif viðkomandi vegarkafla hafa áður verið metin, það er á árunum 2005-2009. Skipulagsstofnun lagðist þá gegn vegalagningu um Teigsskóg en Jónína Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra, sneri við þeirri ákvörðun. Hæstiréttur felldi í október 2009 þann úrskurð ráðherra úr gildi og síðan hefur málið verið í óvissu. 

Sumarið og haustið 2011 hélt Ögmundur Jónasson, þáverandi innanríkisráðherra, fundi með hagsmunaaðilum. Á fundunum kom fram að íbúar á Vestfjörðum væru almennt sammála um að nýjan veg ætti að leggja á láglendi. Ögmundur hafnaði því hins vegar að ný veglína um Teigsskóg færu í umhverfismat. 

Hörð og rökstudd viðbrögð við þeirri ákvörðun Ögmundar bárust frá ýmsum aðilum, segir á heimasíðu Vegagerðarinnar. „Því hefur Vegagerðin í samráði við innanríkisráðherra ákveðið að leggja fram nýja veglínu Þ-H, sem er breytt lega um Teigsskóg,“ en núverandi innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjándóttir, ákvað í fyrra að snúa við ákvörðun Ögmundar.

Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra skoðuðu Teigsskóg í fyrrasumar.Fréttablaðið/Daníel
Á meðfylgjandi korti sjást einnig aðrar leiðir sem Vegagerðin vill meta. Tvær leiðir, D2 og H, sem liggja í jarðgöngum undir Hjallaháls. Leið I, sem þverar Þorskafjörð utan við Teigsskóg og liggur um Þorskafjörð að austanverðu. Leið A1, sem þverar Þorskafjörð utar, milli Skálaness og Reykjaness og liggur svo inn með Þorskafirði að austanverðu. Í tengslum við leiðir A1 og I þarf að leggja tengingu í átt að Reykhólum. 

Hreinn Haraldsson vegamálastjóri sagði í viðtali við Stöð 2 fyrr í sumar að það væri mat Vegagerðarinnar að leið um Teigsskóg væri langbesta og öruggasta vegtengingin. Sú leið væri auk þess þremur milljörðum króna ódýrari en næsti kostur.

Leið Þ-H um Teigsskóg í samanburði við leið B og leið B1, sem Vegagerðin hafði áður kynnt.Kort/Vegagerðin.

Tengdar fréttir

Er hlynnt vegi um Teigsskóg

"Ég er hlynnt því að leggja veginn hér,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra þegar hún skoðaði sig um í Teigsskógi síðdegis í gær á leið sinni til fundar við Vestfirðinga um samgöngumál.

Fundarmenn gengu á dyr á Patreksfirði

Stærstur hluti þeirra tvö til þrjúhundruð manna sem mættu til fundar við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Patreksfirði í dag gengu á dyr þegar um hálftími var liðinn. Á fundinum var fjallað um þá ákvörðun Ögmundar að láta Vestfjarðarveg fara yfir tvo ása, fremur en í gegnum Teigsskóg.

Telur breyttan veg ekki leyfa nýtt umhverfismat

Framtíðarlega Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í algerri óvissu eftir að Skipulagsstofnun gerði Vegagerðinni ljóst að hún myndi ekki fallast á að vegur um Teigsskóg færi í nýtt umhverfismat með breyttri veglínu.

Vilja lagafrumvarp um Teigsskógarveg

Bæjarráð Vesturbyggðar segir að samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum þoli ekki frekari tafir á vegaframkvæmdum.

Telur skaða vegna nýs Vestfjarðavegar óbætanlegan

Stærsta verkið sem Vegagerðin hugðist ráðast í á næsta ári, þverun tveggja fjarða á sunnanverðum Vestfjörðum, fær afar neikvæða umsögn Skipulagsstofnunar, sem telur að ekki séu til mótvægisaðgerðir til að bæta fyrir eða koma í veg fyrir skaða vegna framkvæmdanna.

Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa.

Spyr hvort fuglar verði teknir fram yfir fólk á Vestfjörðum

Á að taka tré og fugla fram yfir lífsmöguleika byggðarinnar á Vestfjörðum? Þessari spurningu varpaði prófessor á Akureyri fram í dag inn í tuttugu manna nefnd sem vinnur að sátt um framtíðarlegu vegarins um sunnanverða Vestfirði. Ráðamenn á Vestfjörðum vilja að leiðin um Barðastrandarsýslur verði stytt um rúma tuttugu kílómetra með því að þvera Djúpafjörð og Gufufjörð og losna um leið við tvo erfiða hálsa, Hjallaháls og Ódrjúgsháls.

Hanna Birna til fundar við Vestfirðinga um vegamál

Nýr ráðherra vegamála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hefur fallist á að funda með Vestfirðingum um hvort Vestfjarðavegur verði lagður um Teigsskóg, og að snúið verði við synjun Ögmundar Jónassonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×