Innlent

Vegaþjónusta í lágmarki yfir áramót þrátt fyrir aukna umferð

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Mest verður þjónustan á vegum á suðvesturhorninu í kringum höfuðborgina.
Mest verður þjónustan á vegum á suðvesturhorninu í kringum höfuðborgina. vísir/gva
Umferð á vegum á Suðurlandi yfir hátíðirnar hefur tvö- til þrefaldast á tveggja ára tímabili. Aukningu má að mestu leyti rekja til fjölgunar ferðamanna. Þrátt fyrir það verður þjónusta við vegi á þessum tíma í lágmarki.

Mælingar Vegagerðarinnar sýna að þrefalt fleiri heimsóttu Gullfoss á aðfangadag og jóladag í ár en árið 2014. Umferð um Lyngdalsheiði og Reynisfjall nú var um tvöföld samanborið við sama ár. Fjölgun ferðamanna ein og sér á þessu ári er áætluð svipuð og fjöldi allra ferðamanna sem komu til Íslands árið 2011.

G. Pétur Matthíasson
„Það verður hefðbundin hátíðardagaþjónusta um áramótin víðast hvar,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.

Á gamlársdag er miðað við að þjónustu ljúki klukkan 14 en standi svo á verður þjónustu sinnt rúmri klukkustund lengur. Þjónusta á nýársdag verður í lágmarki en víðast hvar er miðað við að hún hefjist klukkan 10 og verði að hámarki fimm klukkustundir.

Undantekningu frá þessari meginreglu er að finna á vegum suðvesturhornsins út frá höfuðborgarsvæðinu.

„Hér á landi erum við vön því að fólk sé komið heim til sín fyrir klukkan sex á aðfangadag en það gildir ekki endilega um ferðamenn,“ segir G. Pétur. Vegagerðin miðar við þær snjómokstursreglur sem hafa gilt að undanförnu og Pétur viðurkennir að mögulega sé tímabært að íhuga að endurskoða þær í takt við aukinn umferðarþunga. Markmiðið sé hins vegar alltaf að halda sig innan ramma fjárveitinga.

„Síðustu tvo vetur hefur verið halli þar sem þeir hafa verið óvenju harðir. Snjór hefur fallið snemma að hausti og verið langt fram á vor. Haustið í ár hefur hjálpað okkur hingað til,“ segir G. Pétur.

Annan daginn í röð var vegurinn um Holtavörðuheiði lokaður og sömu sögu var að segja af Bröttubrekku, Þröskuldum, Þverárfjalli og Steingrímsfjarðarheiði. Innanlandsflug lá niðri bróðurpart gærdagsins og Baldur og Herjólfur gátu ekki siglt.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×