Innlent

Veðurstofan varar við vatnavöxtum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Búast má við mestri úrkomu í kringum fjöll og jökla og vöð yfir ár geta því verið varhugaverð.
Búast má við mestri úrkomu í kringum fjöll og jökla og vöð yfir ár geta því verið varhugaverð. Vísir/Valli
Veðurstofan varar við miklum vatnavöxtum í ám á Snæfellsnesi, í kringum Eyjafjalla-og Mýrdalsjökul og við sunnanverðan Vatnajökul.

Er það vegna mikillar rigningar sem spáð er á Vestur-, Suðvestur,- Suður- og Suðausturlandi frá því á morgun, laugardag, og fram á aðfaranótt mánudags.

Búast má við mestri úrkomu í kringum fjöll og jökla á þessum svæðum og vöð yfir ár geta því verið varhugaverð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×