Innlent

Veðurstofan um Menningarnótt: Frábært flugeldaveður en vindur gæti strítt hlaupurum

Atli Ísleifsson skrifar
Reykjavíkurmaraþonið fer fram í 34. sinn á laugardaginn.
Reykjavíkurmaraþonið fer fram í 34. sinn á laugardaginn.
Gestir Menningarnætur og hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni mega eiga von á fínu veðri á laugardag en vindurinn gæti þó sett eitthvert strik í reikninginn þegar hlaupið verður með sjávarsíðunni.

Þetta segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni. Hann segir spárnar vera að breytast en að það hafi verið nokkuð eindregið að spárnar geri ráð fyrir fínasta veðri á höfuðborgarsvæðinu.

„Eins og staðan er núna er útlit fyrir að það verði einhver norðan-, norðaustanátt. Gæti orðið einhver strekkingsvindur sums staðar, alla vega eins og úti á Seltjarnarnesi. Það er oft skjól þegar austar dregur í borginni, en það er minna hlaupið þar. En það er sem sagt helst að norðanáttin gæti truflað hlaupara í maraþoninu. Ég veit að þeir eru ekkert voðalega hrifnir af vindi.

Það er útlit fyrir að það verði vel bjart, og líklega sólskin bróðurpart dagsins. Það er í raun bara vindurinn sem gæti eitthvað verið að stríða hlaupurum og gestum Menningarnætur. Hitinn er ágætur, gæti farið upp í tólf, fjórtán, jafnvel fimmtán gráður þegar hlýjast verður yfir daginn, en síðan lægir með kvöldinu.

Eins og gerist oft þegar komið er yfir miðjan ágúst þá kólnar þegar sólin gengur til viðar. Almennt lítur þó út fyrir mjög fínt veður, bjart og fallegt,“ segir Óli Þór.

Hvað með flugeldaveðrið?

„Ég held að það gæti nú varla orðið mikið betra. Einhver hæg norðaustanátt og líklegast léttskýjað áfram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×