Erlent

Veðurguðirnir sýndu mátt sinn

jóhann óli eiðsson skrifar
Sjór gekk á land í bænum Scituate í Massachusetts vegna óveðursins.
Sjór gekk á land í bænum Scituate í Massachusetts vegna óveðursins. fréttablaðið/ap
Bylur geisaði á norðausturströnd Bandaríkjanna í gær. Spáð hafði verið miklum snjó í New York en veðurofsinn hlífði borginni. Maine, New Jersey, Massachusetts og nágrannaríki þeirra voru ekki jafn lánsöm.

Snjór náði á sumum stöðum á annan metra og setti daglegt líf úr skorðum. Útgöngubann var í nokkrum ríkjum á meðan veðrið gekk yfir en því hefur nú verið aflétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×