Innlent

Veðrinu verður töluvert misskipt á laugardag: Spáð úrhelli vestanlands en blíðviðri fyrir austan

Birgir Olgeirsson skrifar
Svona lítur spákort Veðurstofa Íslands út fyrir laugardagsmorgun.
Svona lítur spákort Veðurstofa Íslands út fyrir laugardagsmorgun. Vísir/Vedur.is
Veðrinu verður ansi misskipt eftir landshlutum á laugardag. Spáð er úrhelli á vestanverðu landinu meira og minna allan föstudaginn og fram á laugardagsmorgun á meðan blíðviðri verður á austanverðu landinu.

Að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands er ekki tilefni til að vera með einhvern sérstakan viðbúnað vegna þessarar úrkomu sem gæti mælst allt að tugi millimetra þar sem mest verður líkt og spár gefa til kynna í dag. 

„Reykjanesið tekur mikið af þessari úrkomu. Svo er það Snæfellsneið og sunnanverðir Vestfirðir sem fá ansi mikla úrkomu. Snjór er víðast hvar farinn og frost sömuleiðis úr jörðu. Þannig að það verður ansi drjúgt og hleypur í læki en ég myndi ekki halda að það verði einhver flóð þó það geti alltaf einhverjar spýjur farið af stað,“ sagði veðurfræðingurinn við Vísi. 

Um hádegisbilið á laugardag er búist við að það muni stytta upp víðast hvar þó enn verði einhver úrkoma á suðvesturhorni landsins en á meðan verður  sól og blíða á austanverðu landinu og allt að tuttugu stiga hita. 

Veðurfræðingurinn segir að íbúar þess landshluta hafi þurft að bíða mjög lengi eftir hlýindum og muni þeir að öllu óbreyttu fá það endurgreitt í fimmtudag, föstudag og laugardag. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga: 

Á morgun:

Dregur úr vindi og úrkomu, suðvestan 5-13 síðdegis og dálítil væta, en áfram þurrt fyrir austan. Hvessir vestantil annað kvöld. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast norðaustantil á landinu.

Á fimmtudag:

Suðvestanátt, víða 10-15 m/s. Dálítil væta og hiti 8 til 12 stig, en þurrt að mestu norðaustan- og austanlands og hiti 14 til 20 stig.

Á föstudag:

Sunnan 8-15 og rigning, sums staðar talsverð vestantil á landinu. Þurrt að kalla um landið norðaustan- og austanvert. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:

Minnkandi suðlæg átt, rigning með köflum og hiti 7 til 12 stig, en bjartviðri norðaustantil og hiti 14 til 20 stig.

Á sunnudag og mánudag:

Vestlæg átt og dálitlir skúrir, en þurrt á austurhelmingi landsins. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×