Golf

Veðrið í aðalhlutverki á Zurich Classic

Mark Leishman á öðrum hring í gær.
Mark Leishman á öðrum hring í gær. Getty
Óþekktur Bandaríkjamaður, Hudson Swafford, hefur enn ekki fengið skolla á TPC Louisiana vellinum og leiðir á Zurich Classic ásamt landa sínum Boo Weekley.

Þeir eru á 11 höggum undir pari eftir fyrstu tvo dagana og leiða með einu en veður setti strik í reikninginn á lokametrunum í gær og ekki allir þátttakendur náðu að klára annan hring.

Nokkrir kylfingar koma á eftir þeim á tíu höggum undir pari, meðal annars Brendon de Jonge og Jason Day.

Þá hefur frammistaða Ástralans Mark Leishman vakið mikla athygli en hann er að leika í fyrsta mótinu sínu á PGA-mótaröðinni eftir alvarleg veikindi eiginkonu sinnar, sem er þó á hægum batavegi núna.

Leishman er í toppbaráttunni á átta höggum undir pari en fjölskylda hans fylgdi honum eftir á öðrum hring og hvatti hann til dáða.

Bein útsending frá þriðja hring hefst á Golfstöðinni klukkan 17:00 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×