Sport

Veðjaði við tennisstjörnuna og vann sér inn stefnumót

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eugenie Bouchard og John Goehrke á stefnumótinu í Barkleys Canter í Brooklyn í gær.
Eugenie Bouchard og John Goehrke á stefnumótinu í Barkleys Canter í Brooklyn í gær. Vísir/AP
Kanadíska tennisstjarnan Eugenie Bouchard stendur við það sem hún lofar. Það sýndi hún og sannaði í gær þegar hún stóð við stóru orðin og fór á stefnumót með hinum tvítuga John Goehrke.

Eugenie Bouchard er sjálf 22 ára gömul og eins og er í 47. sæti á heimslistanum.

John Goehrke er harður stuðningsmaður New England Patriots í NFL-deildinni og hans menn skiluðu honum ekki aðeins sigri í Super Bowl heldur einnig stefnumóti með hinni fjallmyndalegu Eugenie Bouchard.

John Goehrke veðjaði við Bouchard á Twitter um að New England Patriots liðið myndi snúa við leiknum og vinna þegar staðan var orðin 21-0 fyrir Atlanta Falcons. New England Patriots átti sögulega endurkomu í leiknum og tryggði sér sigur í framlengingu.

Í gærkvöldi fóru þau John Goehrke og Eugenie Bouchard saman á stefnumót en þau voru í bestu sætunum á leik Brooklyn Nets og Milwaukee Bucks í NBA-deildinni í körufbolta.

Eugenie Bouchard stóð ekki bara við stóru orðin heldur setti mynd af þeim tveimur inn á Twtter eins og sjá má hér fyrir neðan.







Það má með réttu segja að lífið leiki við hinn tvítuga John Goehrke þessa dagana. Hvort það verði eitthvað meira úr sambandinu verður aftur á móti að koma í ljós en það fór vel á með þeim á leiknum í nótt.

Bouchard er á meðal þeirra íþróttakvenna sem sitja fyrir í nýjasta sundfatahefti Sports Illustrated sem er að detta í búðir. Myndband af myndatökunni má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×