Gott kvöld og velkomin í fyrsta Kompásþátt vetrarins sem héðan í frá verður á dagskrá á þriðjudagskvöldum. Kompás hefur á síðustu tveimur árum fjallað mikið um barnaníðinga og meðal annars notað tálbeitu til að sýna áhuga fullorðinna karlmanna á kynferðislegum kynnum við þrettán ára stúlku. Í kvöld veltum við upp áleitnum spurningum sem varða lögmann sem ákærður er fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn unglingsstúlkum; á sama tíma og hann er verjandi barnaníðinga. Við segjum frá ákæruatriðum málsins og leitum svara í kerfinu.
Róbert Árni Hreiðarsson, lögmaður sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn fjórum unglingsstúlkum heldur fullum réttindum og gegnir störfum ótruflaður. Á meðan hann sætti rannsókn og ákæru, tók hann oftar en einu sinni að sér að verja meinta barnaníðinga og var sem slíkur viðstaddur yfirheyrslur yfir börnum í barnahúsi. Róbert Árni neitar allri sök í málinu á hendur honum, sem nú bíður dóms hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
Efni ţessarar síđu er alfariđ á ábyrgđ ritstjóra Kompás.