Fótbolti

Vardy verður í byrjunarliðinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vardy í leiknum gegn Wales.
Vardy í leiknum gegn Wales. vísir/getty
Samkvæmt heimildum Sky Sports þá verður Jamie Vardy í byrjunarliði enska landsliðsins gegn Slóvakíu á EM í kvöld.

Vardy er búinn að skora fjögur mörk fyrir landsliðið í fimm leikjum. Hann hefur átt fimm skot í búningi enska landsliðsins og fjórum sinnum hefur boltinn farið í netið. Mögnuð tölfræði.

Hann skoraði auðvitað jöfnunarmark Englands gegn Wales síðasta fimmtudag. Það mark kom um 10 mínútum eftir að hann kom inn á.

England er á toppi B-riðils með fjögur stig eða stigi meira en Wales og Slóvakía. Sigur þýðir því að liðið vinnur riðilinn.

Slóvakar töpuðu gegn Wales en unnu síðan flotta 2-1 sigur á Rússum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×