Innlent

Varðskipið Týr kallað út til aðstoðar ástralskri skútu

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Varðskipið Týr
Varðskipið Týr Fréttablaðið/Vilhelm
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst um tvöleytið í dag beiðni um aðstoð frá ástralskri skútu sem stödd var tæpar 180 sjómílur vestur af Garðskaga. Leki hafði komið að skútunni og siglir hún nú fyrir eigin vélarafli til lands.

Varðskipið Týr hefur verið sent til móts við skútuna. Varðskipið mun gefa skútunni eldsneyti þar sem skipstjóri skútunnar sér ekki fram á að ná til lands án þess að fá aukið eldsneyti. Þá mun það  einnig fylgja skútunni til hafnar. Áætlað er að varðskipið verði komið að skútunni um klukkan 22 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×