Körfubolti

Varð bikarmeistari með glerbrot í hælnum

Tómas Þór Þóraðrson skrifar
Tómas Þórður Hilmarsson lét taka risastórt stykki úr hælnum tveimur vikum fyrir bikarúrslitaleikinn en það var meira eftir.
Tómas Þórður Hilmarsson lét taka risastórt stykki úr hælnum tveimur vikum fyrir bikarúrslitaleikinn en það var meira eftir. vísir/þórdís/aðsend
„Maður lifir á þessu eitthvað út vikuna,“ segir Tómas Þórður Hilmarsson, framherji Stjörnunnar, sem varð bikarmeistari með Garðabæjarliðinu eftir ótrúlegan sigur á KR síðastliðinn laugardag.

Tómas Þórður átti flotta innkomu í leikinn, en hann spilaði tólf mínútur, skoraði fimm stig, tók þrjú fráköst og varði tvö skot. Hann nýtti eina skotið sitt í teignum og eina skotið sitt fyrir utan þriggja stiga línuna.

Frammistaða Tómasar er áhugaverð í ljósi þess að hann spilaði með nokkur glerbrot föst í hælnum og hafði lítið æft í aðdraganda leiksins.

„Tveimur vikum fyrir leikinn var ég í afmæli hjá Jóhanni Laxdal [Leikmanni karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta, innsk.blm] þar sem ég steig á flöskubotn,“ segir Tómas Þórður í samtali við Vísi.

„Það brotnaði flaska og ég steig aftur fyrir mig og fæ glerbrot í gegnum skóinn og upp í hælinn. Ég fór beint á slysó þar sem stærsta stykkið var tekið úr mér, en ég æfði ekkert í heila viku eftir það. Þegar ég spilaði Fjölnisleikinn á mánudaginn í síðustu viku var það í fyrsta sinn í viku sem ég hreyfði mig.“

Tómas Þórður (11) horfir á Justin Shouse kyssa bikarinn.vísir/þórdís
Þessi tvítugi 201cm framherji sem er að skora 4,8 stig og taka 3,8 fráköst að meðaltali í leik í Dominos-deildinni var staðráðinn í að missa ekki af bikarúrslitaleiknum.

„Ég keypti mér deyfikrem og bar það á mig auk þess sem ég tók verkjalyf. Ég hætti bara að væla í viku,“ segir hann léttur.

Á mánudaginn eftir bikarúrslitaleikinn var hann hættur að geta stigið í hælinn og var augljóst að eitthvað meira væri að.

„Ég fór aftur upp á slysó þar sem tekin var mynd og þá kom í ljós að það voru enn glerbrot í hælnum. Læknarnir opnuðu þetta aftur og tóku vonandi restina úr hælnum að þessu sinni,“ segir Tómas Þórður, en næsti leikur Stjörnunnar er á föstudaginn gegn Þór í Þorlákshöfn.

„Ég veit ekki hvort ég verði klár. Læknirinn sagði mér að hlusta á hælinn. Ég mun örugglega prófa en frekar vil ég missa af einum leik en vera að drepast langt fram í úrslitakeppnina.“

Glerbrotið sem tekið var úr hæl Tómasar eftir veisluna.mynd/aðsend
Tómas Þórður segist hafa verið verkjalaus í leiknum sjálfum: „Þegar maður er komin inn á finnur maður ekkert fyrir þessu, en kvöldið var óþægilegt. Ég get ekki stigið í hælinn í dag þannig ég er bara á tánum.“

Sigur Stjörnunnar var ótrúlegur, en hvernig upplifði Tómas Þórður spennuna og dramatíkina undir lokin?

„Ég trúði ekki að Helgi Már klúðraði tveimur galopnum skotum. Ég minntist bara undanúrslitanna í fyrra þegar hann kláraði okkur með svipuðu skoti. Ég sá boltann ofan í en þegar þeta var í höfn missti maður sig alveg,“ segir Tómas Þórður Hilmarsson.


Tengdar fréttir

Stjarnan bikarmeistari 2015 | Myndaveisla

Stjarnan varð bikarmeistari í þriðja sinn þegar Garðbæingar lögðu KR að velli í ótrúlegum úrslitaleik í Laugardalshöllinni í dag.

Bikar-Shouse sá aftur um KR í úrslitaleiknum

Stjarnan endurtók leikinn frá 2009 og vann firnasterkt lið KR í úrsiltum Powerade-bikars karla í körfubolta. Justin Shouse leiddi sína menn til sigurs og var kjörinn besti leikmaðurinn í úrslitaleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×