Innlent

Varð að lenda með bilaðan hreyfil

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/anton brink
Herkúlesvél með bilaðan hreyfil lenti á Keflavíkurflugvelli í vikunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Tilkynnt var um óvissustig þar sem um væri að ræða bilun í einum hreyfli vélarinnar af fjórum.

Sjö manns voru í áhöfn vélarinnar og tókst lending hennar vel. Þá féll maður niður mastur og slasaðist á fæti í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum.

Hann hafði klifrað upp í mastrið, sem er um 2.50 metrar á hæð, þegar óhappið varð. Var talið að hann hefði fótbrotnað og var hann fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans.

Þá slasaðist kona sem rann til og skall með andlitið á stein. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×