Innlent

Varar við þjálfun íslenskra lögreglumanna í Bandaríkjunum

Heimir Már Pétursson skrifar
Fyrrverandi yfirmaður lögreglunnar í Maryland og Baltimore í Bandaríkjunum varar við þvi að íslenskir lögreglumenn sé sendir til þjálfunar í Bandaríkjunum, þar sem lögreglan hafi verið hervædd í stríðinu gegn fíkniefnum.

Snarrótin, samtök um borgaraleg réttindi, stendur fyrir tveggja daga opinni alþjóðlegri ráðstefnu sem hefst í Tjarnarbíó á morgun. Neill Franklin og Art Way eru tveir af sex erlendum sérfræðifyrirlesurum á ráðstefnunni.

Franklin er fyrrverandi liðsforingi í fíkniefnadeild lögreglunnar í Maryland og Baltimore í Bandaríkjunum þar sem hann þjónaði í 34 ár. Hann segir stríðið gegn fíkniefnum sem staðið hefur yfir í tæp fimmtíu ár ekki bara vera slagorð, heldur ofbeldisfullt stríð við fólk. Til að mynda séu um 300 morð framin á ári í Baltimore þar sem 600 þúsund manns búa.

Varar við að elta hervæðingu lögreglunnar í Bandaríkjunum

Þótt ofbeldið hér á landi sé nánast ekkert í samanburði við Bandaríkin varar Franklin Íslendinga við starfsaðferðum lögreglunnar.

„Það hvernig lögreglan sigtar fólk sem notar fíkniefni út er stríð gegn fólki. Mér skilst að Íslendingar sendi lögreglumenn á námskeið og ráðstefnur í Bandaríkjunum til að læra aðferðir sem notaðar eru þar. Ég vara ykkur við, í öllum bænum innleiðið ekki þá hervæðingu lögreglunnar sem ríkir í Bandaríkjunum,“ segir Franklin.

Art Way er lögmaður og yfirmaður Drug Policy Alliance í Colorado þar sem kanabis var meira og minna lögleitt fyrir tæpum tveimur árum.

Hvernig tókst fólki sem vildi þessar breytingar að fá stjórnmálamenn til að hugsa öðruvísi en áður um þessi mál?

„Stjórnmálamenn fylgja venjulega fólkinu,“ segir Way og brosir. „Þannig að þegar almenningur hafi skipt um skoðun og hlutföllin í umræðunni breyttust, gátu stjórnmálamennirnir ekki lengur notað gamlar tuggur um nauðsyn þess að beita hörku gegn glæpum og fíkniefnum. Þeir urðu að lokum að fylgja meirihluta almennings,“ segir Way.

Í spilaranum hér að ofan má sjá ítarlegt viðtal Heimis Más við Neill Franklin og Art Way í heild sinni. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×