Innlent

Varar við stormi á sunnudag

Atli Ísleifsson skrifar
Veðurstofan vill beina þeim orðum til fólks að þar sem þetta sé fyrsta óveðrið eftir sumarið, að festa niður hluti sem geta fokið.
Veðurstofan vill beina þeim orðum til fólks að þar sem þetta sé fyrsta óveðrið eftir sumarið, að festa niður hluti sem geta fokið. Vísir/Getty
Veðurstofan varar við stormi sem gengur yfir landið á sunnudaginn, en þetta eru leifar hitabeltislægðarinnar Cristobal sem olli tjóni á eyjum í Karíbahafi um helgina.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að búast megi við suðaustan og austanvindi, 15 til 25 metrum á sekúndu. „Mjög snarpar vindhviður við fjöll. Talsverð rigning víða um land og mikil úrkoma SA-til. Heldur hægari vindur undir kvöld. Hiti 10 til 16 stig. Um hlýtt loft er að ræða og mun öll úrkoman falla sem rigning, einnig á hæstu jöklum.“

Veðurstofan vill beina þeim orðum til fólks að þar sem þetta sé fyrsta óveðrið eftir sumarið, að festa niður hluti sem geta fokið. „Enn er nokkur óvissa um hversu slæmt nákvæmlega veðrið verður, en eftir því sem nær líður að sunndeginum minnkar óvissan í veðurspánni. Það má þó þegar gera ráð fyrir sérlega vinda- og vætusömum sunnudegi.“

„Hitabeltislægðin Cristobal olli tjóni á eyjunum við Karíbahaf um helgina. Á þriðjudaginn náði Cristobal styrk fyrsta stigs fellibyls. Þegar þetta er skrifað (kl. 12 fim. 28. ágúst) er Cristobl staddur um 700 km A af A-strönd Bandaríkjanna og er á leið NA. Vanalega minnka fellibylir þegar þeir fara til norðurs yfir kaldari sjó.

Spár gera ráð fyrir að þegar Cristobal nálgist Nýfundnaland mæti hann köldu lofti sem streymir til SA af Labrador hafi og það ásamt samspili við háloftavindröst viðheldur styrk hans að nokkru leyti. Það má því segja að lægðin sem veldur óveðrinu á sunndag séu leifarnar af fellibylnum Cristobal.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×