Fótbolti

Varane missir af úrslitaleiknum og EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Varane hefur leikið 28 landsleiki fyrir Frakkland.
Varane hefur leikið 28 landsleiki fyrir Frakkland. vísir/getty
Raphaël Varane, miðvörður Real Madrid og franska landsliðsins, missir bæði af úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu og EM í Frakklandi vegna meiðsla í læri.

Varane er þriðji franski miðvörðurinn sem dettur út fyrir EM; Kurt Zouma sleit krossband í hné í febrúar og þá er Mamadou Sakho í banni eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakka, hefur kallað Adil Rami, leikmann Evrópudeildarmeistara Sevilla, inn í franska hópinn í stað Varane.

Auk Rami eru miðverðirnir Laurent Koscielny, Elaqium Mangala og Jeremy Mathieu í franska hópnum.

Frakkar mæta Rúmeníu í opnunarleik EM 10. júní næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×