Íslenski boltinn

Varamennirnir tryggðu Þór fimmta sigurinn í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þórsarar fylgja erkifjendunum í KA fast eftir.
Þórsarar fylgja erkifjendunum í KA fast eftir. vísir/anton
Þór vann sinn fimmta leik í röð í Inkasso-deildinni þegar liðið sótti Fjarðabyggð heim í dag. Lokatölur 2-3, Þór í vil, í ótrúlegum leik.

Agnar Darri Sverrisson var hetja Þórsara í dag en hann skoraði sigurmarkið þegar mínúta var til leiksloka.

Jóhann Helgi Hannesson kom Þór yfir með marki úr vítaspyrnu á 9. mínútu en eftir sex mínútna leik í seinni hálfleik jafnaði Jose Alberto Djalo Embalo metin fyrir Fjarðabyggð.

Víkingur Pálmason kom heimamönnum svo í 2-1 á 58. mínútu þegar hann skoraði sitt fjórða mark í sumar.

En þá var komið að varamönnum Þórs. Gunnar Örvar Stefánsson jafnaði metin á 88. mínútu og aðeins mínútu síðar skoraði Agnar Darri sigurmarkið. Aron Gauti Magnússon, leikmaður Fjarðabyggðar, fékk svo að líta rauða spjaldið í uppbótartíma.

Fjarðabyggð er í 9. sæti deildarinnar með sex stig en liðið hefur ekki unnið leik frá því í 2. umferðinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×