Fótbolti

Varamaður meiddist eftir 20 sekúndur | Myndband

Medel í landsleik með Síle.
Medel í landsleik með Síle. vísir/epa
Sílebúinn Marco Medel lenti í ótrúlega neyðarlegri uppákomu á dögunum.

Hann spilar með Santiago Wanderers og átti að hleypa lífi í leik síns liðs snemma í síðari hálfleik. Það átti ekki að vera.

Er Medel skokkar inn á völlinn tekst honum að togna. Aðeins 20 sekúndum eftir skiptinguna var hann lagstur í grasið.

Meiðslin reyndust alvarleg og hann var borinn af velli. Enginn ofurvaramaður þar á ferð.


Marco Medel se blesse en rentrant sur le... by POPnSPORT



Fleiri fréttir

Sjá meira


×