Erlent

Varaforsetinn heitir stuðningi við ESB

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Mike Pence og Donald Tusk á fundinum í gær.
Mike Pence og Donald Tusk á fundinum í gær. vísir/afp
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, segir Bandaríkin vilja stuðla að samvinnu og samkennd milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Þetta sagði Pence í ræðu sinni á fundi í höfuðstöðvum ESB í Brussel, höfuðborg Belgíu. BBC greinir frá því að með þessu vilji Pence róa embættismenn ESB sem óttuðust um samband stórveldanna eftir ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um sambandið.

„Í dag nýt ég þeirra forréttinda að fá fyrir hönd forsetans að tilkynna ykkur um skuldbindingu Bandaríkjanna til samvinnu við Evrópusambandið,“ sagði Pence.

„Þótt við kunnum að vera ósammála deila álfur okkar arfleifð, gildum og þeim tilgangi að stuðla að friði og frelsi, lýðræði, lögum og reglu. Að þessum markmiðum munum við áfram vinna,“ sagði varaforsetinn enn fremur.

Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, sagði á fundinum að Evrópusambandið treysti á ótvíræðan stuðning Bandaríkjanna. „Eftir að hafa heyrt svona jákvæða yfirlýsingu verða jafnt Evrópubúar sem Bandaríkjamenn að láta verkin tala.“

Tusk vísaði til þess að stuðningur Bandaríkjanna hefði oft reynst mikilvægur. Vísaði hann til þess er Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna á níunda áratugnum, studdi Pólverja sem þá bjuggu við herlög sem ríkisstjórnin hafði sett.

Aðrir embættismenn ESB tóku í sama streng og sögðu ummæli Pence hafa orðið til þess að endurvekja trú á áframhaldandi samstarfi við Bandaríkin. Reuters greinir frá því að þeir séu þó efins um að hversu miklu leyti Pence tali í raun máli forsetans. Pence hafi þó komið vel fyrir.

Á undanförnum mánuðum, einkum í kosningabaráttu sinni á síðasta ári, urðu ummæli Trumps um ESB til að styggja háttsetta embættismenn innan sambandsins. Til að mynda þegar hann hvatti Breta til að yfirgefa sambandið og fagnaði svo útkomunni þegar Bretar kusu um að gera það í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ummæli Trumps um að Atlantshafsbandalagið væri úrelt í núverandi mynd bættu ekki úr skák.

Pence vísaði einnig til þess á fundinum í gær að Bandaríkin hygðust halda skuldbindingar sínar við Atlantshafsbandalagið.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×