Innlent

Varað við stormi á morgun

Atli Ísleifsson skrifar
Ófáar lægðirnar hafa gengið yfir landið á síðustu dögum.
Ófáar lægðirnar hafa gengið yfir landið á síðustu dögum. Vísir/Stefán
Búist er við stormi úti við norðurströndina og suðaustanlands á morgun. Má reikna með vindi hvassari en 20 metrum á sekúndu.

Á vef Veðurstofunnar segir að það gangi í vestan og suðvestan vind í dag, 10 til 20 metrum á sekúndu, þar sem hvassast verður nyrst.

„Skýjað veður og dálítil él á N-verðu landinu. Hlýnandi, hiti 0 til 5 stig síðdegis en kringum frostmark fyrir austan.

Allhvöss eða hvöss vestanátt á morgun. Súld eða rigning, en þurrt A-lands. Hiti 2 til 10 stig.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×