Innlent

Varað við stormi á morgun: Börn gætu átt erfitt með að ganga í skólann

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Spáð er stormi á höfuðborgarsvæðinu á morgun með talsverðri rigningu.
Spáð er stormi á höfuðborgarsvæðinu á morgun með talsverðri rigningu. vísir/eyþór
Veðurstofan varar við suðaustan hvassviðri eða stormi, það er yfir 20 metrum á sekúndu, víða um land á morgun með talsverðri rigningu sunnan og vestan til.

Í tilkynningu sem slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér vegna veðursins þar sem segir að börn gætu átt erfitt með að ganga í skólann í fyrramálið, föstudaginn 11. nóvember. Slökkviliðið brýnir það því fyrir foreldrum og forráðamönnum að fylgjast vel með fréttum.

Veðurhorfur næstu daga samkvæmt vef Veðurstofu Íslands:

Suðaustan 8-15 metrar á sekúndu og rigning eða slydda vestanlands í kvöld. Hvessir í nótt og suðaustan 18-25 metrar á sekúndu og rigning í fyrramálið, hvassast suðvestan til og talsverð eða mikil sunnan- og vestanlands á morgun. Snýst í vestan 8-15 metrar á sekúndu vestan til síðdegis og dregur úr rigningu. Hægt hlýnandi veður og hiti 6 til 13 stig á morgun, hlýjast á Norðvesturlandi.

Á laugardag:

Vestan 8-15 metrar á sekúndu og rigning í fyrstu austanlands, en léttir síðan til þar. Annars víða skúrir eða él. Vaxandi suðaustanátt og slydda suðvestan til um kvöldið. Hiti 0 til 5 stig.

Á sunnudag:

Sunnan- og suðvestan hvassviðri og talsverð rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 4 til 9 stig. Hægari og skúrir eða slydduél um kvöldið, en léttir til eystra og kólnar í veðri.

Á mánudag:

Suðvestanátt og skúrir eða él, en bjartviðri austanlands. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×