Innlent

Varað við ofsaveðri: „Þetta verður hvellur í fyrramálið“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mjög hvasst verður á vestanverðu landinu á morgun.
Mjög hvasst verður á vestanverðu landinu á morgun. Vísir/Anton Brink
„Við erum að spá alveg upp í 30 metra á sekúndu, sem er ofsaveður, snemma í fyrramálið á vestanverðu landinu og það stendur eitthvað fram yfir hádegi,“ segir Þorsteinn Jónsson, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, en varað er við roki eða ofsaveðri um landið vestanvert á morgun með vindhraða á bilinu 23 til 30 metrar á sekúndu.

Þorsteinn segir að veðrið verði verst á Snæfellsnesi, Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli, við Breiðafjörð og Hrútafjörð og þá gæti líka orðið mjög hvasst á Reykjanesskaganum, og þar með á Reykjanesbraut, þar sem vindur gæti farið upp í 28 metra á sekúndu. Á hálendinu er síðan spáð fárviðri, það er allt að 33 metrum á sekúndu.

„Þannig að þetta verður hvellur í fyrramálið og það gætu orðið samgöngutruflanir og einhverjar fokskemmdir hérna vestanlands,“ segir Þorsteinn.

Aðspurður hvort að þessu ofsaveðri fylgi mikil úrkoma segir hann svo ekki vera á vestanverðu landinu en suðaustanlands er búist við miklu vatnsveðri á morgun. Þar gætu ár bólgnað og jafnvel skriður fallið en spáin nær allt frá Mýrdal, austur í Öræfasveit og lengra meðfram Vatnajökli. Á því svæði ætti fólk því að huga að niðurföllum.

Þorsteinn segir að veðrið byrji svo að ganga niður upp úr hádegi og eftir því sem líður á daginn.

Veðurhorfur eru annars þessar á landinu:

Sunnan 15-23 metrar á sekúndu og rigning með köflum, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hvessir í nótt, suðaustan 23-30 metrar á sekúndu með morgninum vestan til, hvassast við Breiðafjörð og á Norðurlandi vestra kringum hádegi, en lægir talsvert síðdegis. Suðaustan 18-25 austan til, en lægir þar annað kvöld. Víða talsverð rigning, jafnvel mikil rigning suðaustan lands, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 3 til 9 stig.

Á fimmtudag:

Sunnan 18-23 m/s A-lands og hiti 3 til 8 stig, en annars 8-13 og hiti kringum frostmark. Talsverð rigning á A-verðu landinu, slydda eða snjókoma með köflum V-til, en lengst af úrkomulítið NA-lands.

Á föstudag:

Suðlæg átt, 8-13 m/s og slydda eða snjókoma A-til og rigning við ströndina, en léttir til síðdegis. Skýjað með köflum V-til, en rigning eða slydda undir kvöld. Hiti kringum frostmark.

Á laugardag:

Vaxandi suðvestlæg átt með hlýnandi veðri. Slydda og síðar rigning V-til, en þurrt og bjart fyrir austan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×