Innlent

Vara við tölvuþrjótum

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/vilhelm
Síminn varar eindregið við þrjótum sem hafa sent tölvupóst á landsmenn þar sem óskað er eftir kreditkortaupplýsingum í nafni fyrirtækisins en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Síminn biður aldrei um kreditkortaupplýsingar í tölvupósti. Við hvetjum því viðskiptavini, sem og aðra sem hafa fengið þennan póst, til að hafa varann á og eyða honum. Hafi viðskiptavinir fallið í gryfjuna og gefið upp kortaupplýsingar bendum við þeim á að hafa samband við viðskiptabankann sinn.“

Textinn í tölvupóstinum sem sendur var á laugardag frá netfanginu; thjonusta@mail.com, er ritaður á lélegri íslensku.

Í póstinum stendur:

Aðgangur að reikningnum þínum er takmarkað við eftirfarandi næst.

Við tókum eftir að þú hefur greitt reikning tvisvar

Skrá nr þitt : "00397131/7404"

Til að staðfesta endurgreiðslu þína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×