Innlent

Vara við gífurlegri rigningu

Samúel Karl Ólason skrifar
Úrkomuspá.
Úrkomuspá. Mynd/Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra
Almannavarnir og Veðurstofa Íslands vara við gífurlegri rigningu hér á landi, vatnavöxtum og skriðuföllum á næstu dögum. Veðurstofan spáir meira en „100 mm á sólarhring, á svæðunum frá austanverðum Vatnajökli í austri, á öllu Suðaustur- og Suðurlandi og norður með Vesturlandi að Ísafjarðardjúpi.

Fólki er ráðlagt að hreinsa vel frá niðurföllum og grípa til aðgerða til að tryggja að frárennslismannvirki virki sem skildi.

„Langvarandi úrkomuatburðir sem þessir eru mjög sjaldgæfir og aðstæður og afleiðingar því ókunnuglegar og jafnvel hættulegar.“

Ásamt úrkomunni er búist við miklu afrennsli af jöklum.

„Því má búast við miklum vatnavöxtum í kjölfarið og þar sem mikið hefur rignt undanfarið er vatnsstaða víða há. Flóðahætta getur því skapast mjög víða á svæðinu strax í nótt t.d. Á vatnasviði Hvítár í Árnessýslum, við Ölfusá, og við Norðurá og Hvítá í Borgarfirði.“

Þá er viðbúið að mikið muni vaxa í ám og lækjum og er fólk eindregið ráðlagt frá því að fara yfir óbrúaðar ár og læki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×